Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Lovísa Arnardóttir skrifar 4. mars 2026 10:36 Myndin er tekin á mótmælum Eflingar við veitingastaðinn Ítalíu í september 2024. Rekstraraðilar hafa nú verið dæmdir í þriggja ára atvinnurekstrarbann. Vísir/Vilhelm Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur Ítalgest ehf., rekstrarfélags veitingastaðarins Ítalíu, hafa verið úrskurðaðir í atvinnurekstrarbann til þriggja ára. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms frá því í janúar.
Fjallað var um aðgerðir stéttarfélagsins Eflingar vegna brota rekstraraðilanna árið 2024. Í september það ár var greint frá mótmælum við veitingastaðinn. „Dómur héraðsdóms og staðfesting Landsréttar staðfestir hvers konar brotastarfsemi átti sér stað við rekstur félagsins. Skiptastjóri þrotabús Ítalgest, Björn Þorri Viktorsson, krafðist þess að þeir Elvar og Björgvin Narfi myndu sæta atvinnurekstrarbanni vegna aðkomu sinnar að félaginu, en rekstur þess minnti fremur á skipulagða brotastarfsemi en rekstur veitingahúsa. Þannig fundust fjölmargar óútskýrðar greiðslur út úr félaginu inn á persónulega reikninga þeirra félaga eða til fólks þeim tengdum fjölskylduböndum. Kröfur í þrotabúið námu um 116 milljónum króna en því sem næst engar eignir fundust í því,“ segir í tilkynningu Eflingar um málið. Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson hafi því verið dæmdir til atvinnurekstrarbanns til þriggja ára, sem sé hámarksrefsing samkvæmt lögum. „Efling fagnar því að brugðist sé við því sem virðist hafa verið skipulögð brotastarfsemi til langs tíma af hálfu þeirra félaga. Ótækt er að menn komist upp með að brjóta gegn verkafólki svo árum skiptir, án nokkurra afleiðinga,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að Efling hafi á þessum tíma vakið athygli á fjölmörgum og alvarlegum brotum gegn réttindum verkafólks á umræddum veitingastöðum, sem staðið höfðu í lengri tíma. Trúnaðarráð Eflingar hafi svo samþykkt ályktun á fundi sínum 12. september 2024 þar sem misnotkun vinnuafls og launaþjófnaður á veitingahúsinu Ítalíu voru fordæmd. Eftir fundinn hafi verið gripið til samstöðuaðgerðar á Frakkastíg fyrir utan veitingahúsið. Efling hafi einnig við það tilefni safnað saman vitnisburðum starfsfólks sem unnið hafði á veitingastöðum þeirra félaga, aflað gagna og komið þeim á framfæri til að vekja athygli á brotum gegn verkafólki. Greint var frá gjaldþroti félagsins um mánuði síðar. Elvar hafði þá viðurkennt að hann hefði glímt við smávægilega erfiðleika við launagreiðslur og að hann hafi verið að semja við lífeyrissjóði um greiðslur þegar aðgerðir Eflingar hófust. Hann taldi aðgerðir Eflingar alls ekki réttmætar. Í tilkynningu Eflingar um niðurstöðu dómstóla segir að þó svo að Elvar hafi haldið því fram á þessum tíma að aðgerðir Eflingar hafi haft áhrif á lokun staðarins og gjaldþrot félagsins séu það ósannindi vegna þess að hann hafi þegar verið búinn að leggja fram sína kröfu um gjaldþrot áður en aðgerðir Eflingar hófust.
Dómsmál Kjaramál Deilur Eflingar og Ítalíu Gjaldþrot Veitingastaðir Stéttarfélög Reykjavík Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira