Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. mars 2026 21:02 Geir H. Haarde minnist Davíðs með hlýju. Vísir/Lýður Valberg Vinur Davíðs Oddssonar og pólitískur samherji segir hann hafa á löngum og glæstum ferli verið harðan í horn að taka en á sama tíma verið hrókur alls fagnaðar. Davíð lést á heimili sínu í gær, 78 ára gamall.
Tilkynnt var um andlát Davíðs á forsíðu Morgunblaðsins í dag og var víða flaggað í hálfa stöng. Davíð gegndi stöðu ritstjóra blaðsins í sautján ár frá árinu 2009. Davíð var borgarstjóri frá 1982 til 1991, en þá varð hann formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, embætti sem hann gegndi lengst allra til ársins 2004. Davíð stoppaði stutt við í utanríkisráðuneytinu og í Seðlabankanum um fjögurra ára skeið þaðan sem leið hans lá í ritstjórastól Morgunblaðsins eftir bankahrun árið 2009. Hann fór síðar í stutt sumarleyfi 2016 þegar hann bauð sig fram til forseta Íslands án þess að eiga erindi sem erfiði. Fjöldi manns, bæði samherjar og pólitískir andstæðingar minntust Davíðs í dag. Þá var hans einnig minnst á Alþingi. Geir H. Haarde eftirmaður Davíðs í formannsstólnum og í forsætisráðuneytinu segir Davíð hafa verið góðan félaga. Kynntust í menntaskóla „Við kynntumst í menntaskólanum um 1970, höfum þekkst alla tíð síðan og lengi vel unnið saman, í mörg ár. Hann hafði forrystu um afskaplega marga hluti,“ segir Geir. Þannig hafi Davíð ekki bara verið mikill hugsjónamaður, heldur komið miklu í verk. „Hann var harður í horn að taka gagnvart andstæðingum sínum, en hann var líka húmoristi og beitti oft kímnigáfu sinni gagnvart sínum andstæðingum og mig grunar að það hafi oft sviðið undan því en ég held ekki að hann hafi litið á andstæðinga sína sem persónulega óvini sína.“ Davíð hafi ekki fælst átök. „En ég man líka eftir ánægjulegum augnablikum þar sem menn voru að skemmta sér, hann var iðullega hrókur alls fagnaðar og gat verið mjög skemmtilegur og kastað fram vísum og þess háttar, þannig það er margs að minnast hvert sem litið er.“
Sjálfstæðisflokkurinn Andlát Davíðs Oddssonar Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Sjá meira