„Valsreiturinn... í Pyongyang“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. febrúar 2026 17:10 Fjölmargir taka undir orð Kristins Hrafnssonar um líkindi milli norður-kóreskrar byggingarlistar og íslenskrar. Vísir/Vilhelm/EPA Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið. „
Lengi hefur mig grunað að Norður-Kóra stundaði stórfelldar njósnir á Íslandi með það að markmiði að stela íslensku hugviti. Svo kemur skýr sönnun þess með þessari mynd þar sem erlendir miðlar eru aðallega að spekúlera í dótturinni Kim Ju-ae sem talin er líklegur arftaki,“ skrifaði Kristinn í færslu sem hann birti fyrr í dag. Kim Jong Un með dóttur sinni, Kim Ju Ae, á Saeppyol-stræti í Pyongyang.EPA „Hins vegar sést glöggt á umhverfinu að Kim stjórnin hefur skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi. Áður en langt um líður verður enginn munur á Reykjavík og Pyongyang,“ skrifar hann jafnframt. „Ætli þeir hafi líka hakkað sig inn í tölvukerfi byggingar- og skipulagsfulltrúa borgarinnar og vinni nú að því að endurgera allt skipulag, verkferla og viðmót hjá því opinbera batteríi?“ skrifar hann svo í ummælum við færsluna. „Norður-Kó - pavogur“ Færslan hefur vakið töluverð viðbrögð, mörg hundruð manns brugðist við henni og tugir skrifað ummæli við hana. Margir taka undir grínið og þykjast vissir um að myndin sé tekin á Íslandi en ekki Norður-Kóreu. „Er þetta við Borgartúnið?“ spyr stærðfræðingurinn Ingólfur Gíslason og fjöllistakonan Margrét Erla Maack svarar: „Sama og ég ætlaði að skrifa! Þarna í Bríetartúninu!“ Rithöfundurinn Andri Snær Magnason, sem gaf út síðustu jól nóvelluna Jötunstein sem fjallar á mjög gagnrýnin hátt um íslenskan byggingariðnað og húsnæðisuppbyggingu síðustu ára, leggur líka orð í belg: „Norður-Kó - pavogur!“ „Valsreiturinn... í Pyongyang,“ bætir Friðrik Brekkan við en fær svar frá Einari Guðjónssyni, eiganda Kaffifélagsins á Skólavörðustíg: „Ekki nógu þétt m.v. Reykjavík þarna í Pyongyang. Samfylkingarmódelið ekki þarna enn.“ Leikstjórinn Guðný Halldórsdóttir bendir á Norður-Kórea hafi tekið við af Austur-Þýskalandi: „Gat verið að nýji íslenski arkítektúrinn kæmi frá N. Kóreu. Lengi kom hann frá Austur-Þýskalandi, en allt asbest víst uppurið.“ „Ef ég væri ekki frakkanum mínum hefði ég haldið að þeir hefðu stolið honum líka,“ segir Guðmundur Brynjólfsson, djákni og bókmenntafræðingur.
Húsnæðismál Norður-Kórea Reykjavík Byggingariðnaður Kópavogur Arkitektúr Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Ólétt 52 ára Lífið Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira