Hag(ó)stjórnin Bryndís Haraldsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 08:31 Annan mánuðinn í röð mælist verðbólgan 5,2%, umfram spár og væntingar helstu greinenda. Í síðasta mánuði kenndi forsætisráðherra einskiptisliðum og fyrirtækjum út í bæ um verðbólgumælinguna, og sagði ekkert tilefni til að breyta um kúrs, planið margumtalaða stæði óhaggað. Gott og vel, vissulega höfðu skattahækkanir ríkisstjórnarinnar sem tóku gildi um áramót áhrif á mælingu janúarmánaðar en það gera þær ekki að þessu sinni. Og vonandi hyggst ráðherrann ekki endurtaka leikinn og skella skuldinni á fyrirtæki út í bæ, það er enginn sómi af því. Hagstjórnin er á hennar ábyrgð, Seðlabankans og aðila vinnumarkaðarins, en ekki einstaka leikenda út í bæ. Úr því sem komið er má raunar draga margítrekaðar viljayfirlýsingarnar forsvarsmanna Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um að tryggja verðstöðugleika og áframhald vaxtalækkunarferlisins sem hófst hjá síðustu ríkisstjórn í umtalsverðan efa. Það dugar nefnilega ekki að tala um aðhald og hallalaus fjárlög lon og don og vænta þess að það eitt skili tilætluðum árangri. Nýjustu verðbólgumælingar sýna það svart á hvítu að meira þarf að koma til en orðin ein. Í þessum efnum hefur ríkisstjórnin lítið gert annað en að róa í öfuga átt við yfirlýst markmið. Það að auka ríkisútgjöld um 143 milljarða króna milli fjárlaga kallast hið minnsta ekki að sýna ábyrgð í rekstri né er það skýrt merki um aðhald sem styður við Seðlabankann í baráttunni við verðbólguna. Það að rekja megi obbann af aukningunni til launa- og verðlagsbreytinga ýtir enn frekar undir nauðsyn þess að ná tökum á verðbólgunni. Og eins og verðbólga og háir vextir séu ekki þegar að þyngja róður heimila og fyrirtækja um of bætir ríkisstjórnin um betur og hækkar skatta um 30 milljarða króna og með meira í pípunum þar sem frekari skattahækkanir hafa verið boðaðar á grunnatvinnuvegi þjóðarinnar. Ábyrgð víkur fyrir pólitískum áherslum Segja má að ríkisstjórnin hafi lofað upp í ermina á sér löngu áður en hún tók við völdum. Kosningaloforð flokkanna þriggja voru ekki ódýr, einkum og sérílagi loforð Flokks fólksins, og vandinn sá að það að auka útgjöld ríkisins samræmist bersýnilega illa markmiðum um að ná niður verðbólgu og vöxtum, sem einnig var lofað. Sannast enn á ný hið fornkveðna að ekki er hægt að gera allt fyrir alla og fá allt sem maður vill á sama tíma. Til að drepa þessari umræðu á dreif einblínir ríkisstjórnin hvað mest á þær aðgerðir sem, að eigin sögn, eiga að styðja tekjulægstu hópana í samfélaginu. Auðvitað er erfitt að tala gegn slíkum aðgerðum, það er að sjálfsögðu gott og gilt markmið að styðja við okkar minnstu bræður og systur en þá er eins gott að gera það almennilega og vanda til verka svo tryggt sé að afraksturinn skili sér til þeirra sem það raunverulega þurfa. Það er einmitt gallinn við boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar að undanförnu, þær eru bæði ómarkvissar og rándýrar fyrir ríkissjóð, því miður. Tökum dæmi; eitt stærsta áherslumál ríkisstjórnarinnar fyrir áramót var að lögfesta árlega eingreiðslu til lífeyrisþega almannatrygginga. Að því tilefni vakti m.a. ASÍ athygli á því að aðgerðin væri bæði almenn og umfangsmikil og óljóst væri hvort um nægilega markvissa ráðstöfun almannafjár væri að ræða. Nú eftir áramót er sérstök áhersla lögð á að lögfesta tengingu almannatrygginga við launavísitölu og sama gagnrýni viðhöfð, þ.e. að um sé að ræða kostnaðarsama og ómarkvissa aðgerð sem geti aukið verðbólguþrýsting og ógnað sjálfbærni ríkisfjármála. Þótt varnaðarorð komi víða að nú sem þá, frá hagsmunasamtökum, fræðimönnum og öðrum faglegum og mikilsmetum aðilum, gefur ríkisstjórnin lítið fyrir þær aðvaranir og svarar því einu til að um pólitískar áherslur að ræða. Þegar verðbólgan er á uppleið, vaxtalækkanir hafa verið settar á ís og atvinnuleysi er að aukast þarf ríkisstjórnin að líta í eigin barm og axla sína ábyrgð. Slík þróun bitnar á landsmönnum öllum, ekki síst þeim sem ríkisstjórnin segist vilja verja, þeim sem minnst hafa milli handanna og standa höllustum fæti í samfélaginu. Aðgerðirnar og pólitísku áherslurnar sem hljóma kannski ágætlega á blaði ganga hreint út sagt illa upp í raunveruleikanum og eru til þess fallnar að auka enn frekar á þann vanda sem blasir við okkur í dag. Að ná niður verðbólgunni er ekki einfalt verkefni sem leyst verður með einu pennastriki hér eða þar en ávinningurinn er gífurlegur fyrir samfélagið í heild sinni. Sterkt velferðarkerfi sem hægt er að treysta á þegar á bjátar byggir enda á stöðugleika, verðmætasköpun og ábyrgri fjármálastjórn ríkisins. Ef ein stoð brestur veikist kerfið allt. Hagstjórn snýst ekki um að eyða meira og skattleggja meira. Hún snýst um að skapa skilyrði fyrir atvinnu, fjárfestingu og vöxt svo við höfum efni á öflugri velferð til framtíðar. Í dag virðist stefnan vera þver öfug. Hvert er raunverulega planið? En það er ekki bara eitt, það er nokkurn veginn allt. Áðurnefndar aðgerðir eru ekki aðeins óábyrgar, ómarkvissar og ógna stöðugleika, þær eru auk þess fjármagnaðar með skattahækkunum á fólk og fyrirtæki og aðgerðarleysi í öðrum mikilvægum málaflokkum. Í heilbrigðiskerfinu er ástandið grafalvarlegt og Landspítalinn í meiri vanda en á tímum heimsfaraldurs. Ekkert er að frétta í menntamálum, nema tíð ráðherraskipti í ráðuneytinu sjálfu. Þegar lofuðum samgönguumbótum hefur verið slegið á frest og Samgönguáætlun tekið breytingum með sérstaka áherslu á kjördæmi ráðherrans. Helstu fréttirnar eru líklega frá utanríkisráðherra sem hefur sett í fluggír og vill koma Íslandi inn í ESB sem allra fyrst. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar mótast augljóslega af kosningaloforðum en ekki af ábyrgð og skynsemi. Flokkur fólksins hefur hingað til notið einstaklega góðs af og tæmist sennilega hratt af þeirra tékklista. Viðreisn virðist næst í röðinni með ESB aðildina á takteinum. Markvissar ákvarðanir í átt að stöðugleika, öllum til heilla, bíða greinilega betri tíma og víkja um stund fyrir hugðarefnum hvers ráðherra fyrir sig. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Alþingi Efnahagsmál Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Launin mín eru ekki vandamálið. Hættu að kenna fátækum um mistök þín Ian McDonald Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson Skoðun Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Elliði Vignisson Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Lögmaður á villigötum – skák og mát… Agnar Þór Guðmundsson Skoðun Öfugir hvatar hlutdeildarlána Sindri Pálmason Skoðun Skoðun Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson skrifar Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Launin mín eru ekki vandamálið. Hættu að kenna fátækum um mistök þín Ian McDonald skrifar Skoðun Öfugir hvatar hlutdeildarlána Sindri Pálmason skrifar Skoðun Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Elliði Vignisson skrifar Skoðun Er háskólamenntun trygging fyrir húsnæðisöryggi? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Afsal fullveldis – eða ekki. Er það einhver spurning? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra eflir endó-meðferð Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hækkun örorkubóta eða raunverulegur stuðningur? Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Léttum á vegunum og eflum strandsiglingar Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þáttaskil í umræðu um blóðmerahald Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Hamingja á stafrænum tímum Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Lögmaður á villigötum – skák og mát… Agnar Þór Guðmundsson skrifar Skoðun Áhrif endurgjafar á virkni heilans Hanna Steinunn Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Meðvirka fjölskyldan Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sérkennilegur samhljómur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Samstarf um grænni framtíð í borginni okkar Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar Skoðun Þyrnirós Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun „Óvægið“ að vitna í lög? Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Hver hefði haldið? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Frádráttarbært dýraníð Jón Kaldal skrifar Skoðun Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun
Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson skrifar
Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar
Skoðun Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar
Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar
„Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun
Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun