Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. febrúar 2026 06:54 Ná Bandaríkjamenn og Íranir saman eða mun koma til átaka? Það er spurning dagsins. Getty/Paige Brown Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gefið út afar misvísandi skilaboð um afstöðu sína í samningaviðræðum við Írana, sem halda áfram í Genf í dag.
Donald Trump Bandríkjaforseti og utanríkisráðherrann Marco Rubio hafa báðir sagt að Bandaríkin muni gera kröfu um takmarkanir á þróun Írana á eldflaugum en samkvæmt heimildarmönnum Guardian hafa sendifulltrúar forsetans, Steve Witkoff og Jared Kushner, ekki komið því til skila við samningaborðið. Fyrirliggjandi tillögur Írana eru sagðar kveða á um „táknrænan“ rétt þeirra til að auðga úran, það er að segja auðgun úrans til notkunar í heilbrigðisþjónustu til að mynda, að Íranir minnki birgir sínar af auðguðu úrani og að eldflugaætlun þeirra verði engar skorður settar. Guardian hefur eftir ónafngreindum írönskum embættismönnum að Witkoff og Kushner hafi þegar lagt blessun sína yfir þessa skilmála. Rubio ítrekaði hins vegar í gær að það yrði „stórt vandamál“ ef Íranir neituðu að takmarka eldflaugaáætlun sína. Þá snerti Trump á þessu atriði í stefnuræðu sinni, þar sem hann sagði eldflaugar Íran þegar ná til Evrópu og varaði við því að þær myndu senn ná til Bandaríkjanna. Forsetinn var raunar nokkuð harðorður gagnvart Íran; sagði þarlend stjórnvöld helsta stuðningsaðila hryðjuverkastarfsemi og sakaði þau um að hafa myrt 32 þúsund manns í mótmælum sem enn standa yfir í landinu. Þá sagði hann þá ekki hafa heitið neinu um að þróa ekki kjarnorkuvopn en þess má geta að tveimur klukkustundum áður hafði Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, sagt á samfélagsmiðlum að Íran myndi ekki undir neinum kringumstæðum þróa kjarnorkuvopn. Bandaríkin hafa nú safnað saman miklum herafla á svæðinu og þá hefur Trump heitið mótmælendum í Íran aðstoð. Ef marka má umfjöllun Guardian binda stjórnvöld í Íran vonir við upplegg Witkoff og Kusnher, sem er eins og fyrr segir nokkuð á skjön við þau markmið sem Trump og stjórnvöld heima fyrir virðast hafa sett sér. Trump hefur haldið spilunum þétt að sér varðandi mögulegar árásir á Íran, hversu umfangsmiklar þær yrðu til að mynda, en Íranir hafa heitið því að hefna grimmilega ef til kemur. Menn bíða því spenntir eftir niðurstöðu fundarhaldanna í dag.
Íran Bandaríkin Hernaður Kjarnorka Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira