Boðaði þingkosningar í skyndi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 16:44 Rúmur mánuður er í kosningar í Færeyjum. Vísir/Vilhelm Lögmaður Færeyja hefur boðað til þingkosninga í Færeyjum eftir rúman mánuð. Næstu kosningar áttu að vera í desember.
Ástæðan fyrir skyndilegum kosningum er að tillaga Aksels V. Johannessonar, lögmanni Færeyja, um útboð Suðureyjarganga var endanlega samþykkt af þinginu með 26 atkvæðum gegn sjö. Í kjölfar þess bað hann um orðið og boðaði til kosninga. Töluvert ósætti hefur verið vegna veglínu Suðureyjarganga en samþykkt áætlun gerir ráð fyrir að vegurinn verði lagður þvert yfir Sandey til að tengja saman Suðureyjargöng og Sandeyjargöng. Talið er að ríkisstjórnarsamstarfið hafi hangið á bláþræði vegna frumvarpsins. Forystumenn stjórnarflokkanna hafa ekki viljað viðurkenna það opinberlega en það lá fyrir að samþykkt Suðureyjarganganna var háð því að frumvarp um hækkun eftirlaunaaldurs hlyti brautargengi. „Traustið milli stjórnarliða hefur í grundvallaratriðum ekki verið til staðar,“ er haft eftir Akseli V. Johannesson, lögmanni Færeyja, í Kringvarpinu. Þingkosningarnar fara fram 26. mars en þær síðustu voru í desember árið 2022.
Færeyjar Kosningar í Færeyjum Tengdar fréttir Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins. 23. febrúar 2026 22:42 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Sjá meira
Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins. 23. febrúar 2026 22:42