Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Lovísa Arnardóttir skrifar 25. febrúar 2026 12:01 Helgi var skipaður í embætti árið 2023. Myndin til hægri er skjáskot úr myndbandi sem tekið var á þorrablótinu. Samsett Tveir hafa tilkynnt Helga Jensson, lögreglustjóra á Vestfjörðum, til nefndar um eftirlit með lögreglu, NEL, vegna áreitni og ofbeldis sem hann á að hafa beitt á þorrablótinu Stútungi á Flateyri þann 14. febrúar. Dómsmálaráðuneytinu er kunnugt um málið samkvæmt heimildum fréttastofu.
Önnur kvörtunin snýr að kynferðislegri áreitni sem Helgi á að hafa beitt konu á þorrablótinu sem fram fór laugardagskvöldið 14. febrúar. Þá á Helgi einnig að hafa lýst því tvívegis yfir að hann væri lögreglustjóri og þess vegna þyrfti hún að hlýða honum. Konan telur einnig að með því hafi Helgi misbeitt sínu valdi sem lögreglustjóri á Vestfjörðum. Hitt atvikið varðar karlmann sem Helgi á að hafa ráðist að líkamlega á öðrum tíma á sama blóti. Bæði atvikin voru tilkynnt til nefndarinnar stuttu eftir þorrablótið. Helgi segir í samtali við fréttastofu að hann hafi ekki sjálfur fengið tilkynningu um að mál gagnvart honum hafi verið tilkynnt nefndinni. „Ég kannast við að hafa verið á þorrablóti,“ segir Helgi og að það hafi ekkert komið upp honum vitanlega á þorrablótinu. Hann segir ekki óalgengt að atvik varðandi lögreglu eða störf hennar séu tilkynnt til nefndarinnar. „Nefndin mun væntanlega senda mér eitthvað erindi. Það er algengt að það komi kvartanir og þá er þeim bara svarað.“ Áður fjallað um ofbeldishegðun Helga Fjallað var um það árið 1997 í Helgarpóstinum að Helgi hefði beitt tvo menn ofbeldi. Annars vegar síðla árs 1994 á Seyðisfirði og svo nokkrum mánuðum síðar á þorrablóti á Egilsstöðum. Þá var Helgi starfandi hjá sýslumannsembættinu á Austfjörðum. Helgi vísaði þessum ásökunum á bug í viðtali við Helgarpóstinn á sínum tíma og kemur fram í fréttinni að hann hafi ekki fengið áminningu í starfi eða verið kærður vegna atvikanna. Í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum þann 16. febrúar segir að þau þorrablót sem hafi farið fram á svæðinu hafi farið vel fram. „Þau þorrablót sem fram fóru á svæðinu sl. helgi virðast hafa farið vel fram eftir því sem lögregla best veit. Það sama á við um þau þorrablót sem haldin hafa verið síðustu helgar og er það vel,“ segir í tilkynningunni. Í myndbandi að neðan frá hljómsveitinni Færibandinu má sjá að mikil stemning var á blótinu. View this post on Instagram A post shared by Færibandið (@faeribandid) Á Austurlandi áður en hann fór vestur Helgi var skipaður í embætti lögreglustjóra á Vestfjörðum í janúar árið 2023. Fyrir það og frá árinu 2015 gegndi hann stöðu aðstoðarsaksóknara og staðgengils lögreglustjórans á Austurlandi auk þess að hafa verið tímabundið settur sýslumaður í nokkur skipti sem og settur héraðsdómari á Austurlandi. Á árunum 1989-2006 starfaði Helgi hjá bæjarfógetanum á Seyðisfirði og sýslumanninum á Seyðisfirði við störf löglærðs fulltrúa, þ.m.t. dómstörf sem þá voru á hendi sýslumanna, utan áranna 1998-1999 þegar hann starfaði við eigin lögmannsstofu og fasteignasölu. Frá árinu 1992 gegndi Helgi stöðu staðgengils sýslumanns á Seyðisfirði. Árið 2006 færði Helgi sig yfir til embættis sýslumanns á Eskifirði þar sem hann gegndi stöðu fulltrúa og staðgengils sýslumanns fram til ársins 2014 og starfaði þar m.a. við lögreglustjórn, stjórnun rannsókna lögreglumála og saksókn auk hefðbundinna verkefna er undir sýslumann heyra. Nefnd um eftirlit með lögreglu er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem hóf störf 1. janúar 2017. Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að taka við tilkynningum frá almenningi um meint refsiverð brot, starfsaðferðir eða framkomu lögreglumanna. Á vef nefndarinnar segir að auk þess geti nefndin að eigin frumkvæði skoðað atvik eða verklag lögreglu ef hún telur ástæðu til. Nefndin fékk til sín 125 mál til skoðunar á síðasta ári og er það mestur fjöldi frá stofnun hennar. Margrét Einarsdóttir er formaður nefndarinnar. Fjöldi mála sem hafa borist Nefnd um eftirlit með lögreglu frá stofnun nefndarinnar. Þeim fjölgaði mikið á síðasta ári. Myndin er úr ársskýrslu nefndarinnar fyrir árið 2025. Á vef nefndarinnar segir að hún fari yfir allar kvartanir sem berast og taki skriflega rökstudda ákvörðun um næstu skref. Hlutverk nefndarinnar sé að tryggja að málið fari til réttra aðila innan lögreglu eða ákæruvalds. Nefndin hefur ekki heimild til að rannsaka sakamál, höfða ákæru eða beita lögreglumenn viðurlögum. Málsferðartími hjá nefndinni er að meðaltali þrír mánuðir frá því að öll gögn berast nefndinni. Ákvörðun nefndarinnar getur endað með því að málinu sé vísað til héraðssaksóknara eða ríkissaksóknara ef um refsiverða háttsemi er að ræða, að því sé vísað til viðkomandi lögreglustjóra ef það snýr að starfsaðferðum eða framkomu lögreglumanns eða að því sé vísað til ríkislögreglustjóra ef málið varðar almenna starfshætti lögreglu. Ef nefndin telur ekki ástæðu til frekari meðferðar tekur hún um það skriflega og rökstudda ákvörðun. Ef málið fellur utan starfssviðs nefndarinnar er tilkynningunni vísað frá. Ákvörðun nefndarinnar er send þeim sem tilkynnti og birt viðkomandi embætti, ef við á. Veistu meira um málið eða hefurðu fréttnæma ábendingu? Sendu okkur fréttaskot hér.
Lögreglan Lögreglumál Ísafjarðarbær Kynferðisofbeldi Þorrablót Mest lesið Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Erlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Erlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fleiri fréttir Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Sjá meira