Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2026 12:00 Morgunblaðið boðar verulegar hreinsanir á borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins. Aðeins þær Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir hljóta náð fyrir augum kjörnefndar. vísir/samsett Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er á leið í borgarstjórn. Hann ætlar að gefa kost á sér og mun væntanlega skipa þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Morgunblaðið boðar miklar hreinsanir á núverandi borgarstjórnarfulltrúum.
Þetta upplýsti Brynjar í þættinum Synir Egils á Samstöðinni í gær en til þess er tekið hversu þétt 15 manna kjörnefnd hefur haldið spilunum að sér. Menn gera því skóna að hann muni skipa 3. sæti á lista flokksins en þá stendur út af spurningin: Hver verður í 2. sæti? Þar hefur einkum verið nefnt nafn Sigrúnar Ástu Einarsdóttur Grafarvogsbúa og Alberts Guðmundssonar formanns Varðar, sem frá upphafi hefur skipt sér mjög af tilhögun við val listans. Kjartan ekkert heyrt í kjörnefndinni Eða svo segir í Morgunblaðinu, sem ætti sannarlega að vera með puttann á púlsinum hvað þessi mál varðar, en í laugardagsblaðinu var farið yfir stöðuna og þar er gert ráð fyrir því að talsverðar hreinsanir verði. Brynjar Níelsson mun ef allt fer sem horfir verða í borgarstjórn á næsta kjörtímabili.vísir/vilhelm Andrés Magnússon ritstjórnarfulltrúi, sem er bróðir Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa, skrifar fréttina en samkvæmt heimildum hans er Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir eini núverandi borgarfulltrúinn sem hlaut náð fyrir augum kjörnefndar. Að sögn Andrésar færast þau Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir, Björn Gíslason og Friðjón R. Friðjónsson ýmist niður listann eða að þeim verði hreinlega sópað út. „Samkvæmt heimildum blaðsins á ekkert þeirra von um að ná tryggu varasæti miðað við tillögu kjörnefndar, hvað þá meira.“ Andrés Magnússon ritstjórnarfulltrúi ritar grein í Morgunblaðið. Andrés er bróðir Kjartans Magnússonar, en hann hefur ekkert heyrt í kjörnefnd. Öll hafa þau þó gefið kost á sér. Vísir ræddi við Kjartan sem sagðist hafa heyrt ýmislegt en ekkert þó frá kjörnefnd. Og hann taldi að enginn kollega hans í borgarstjórn hefði gert það heldur. „Ég las þetta bara í Morgunblaðinu. Ég á von á hverju sem er,“ segir Kjartan. Hugmynd plantað í Moggann Eftir því sem Vísir kemst næst er ekki frágengið hvernig listinn verður skipaður. Sjálfstæðisflokkurinn er með sex borgarfulltrúa í dag en miðað við kannanir má ætla að þeir verði fleiri eftir kosningar. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur ekkert heyrt í kjörnefnd. Og eftir því sem hann kemst næst á það við um þá borgarfulltrúa einnig sem til stendur að víki.Aðsend Bessí Jóhannsdóttir er formaður nefndarinnar og virðist hún reka nefndina með harðri hendi en þó virðist hún ekki hafa komist að niðurstöðu. Vísir hefur heyrt þeirri kenningu haldið fram að fréttinni í Morgunblaðinu hafi einfaldlega verið „plantað“ til að það fái eins konar lögmæti að þessar hreinsanir verði. Hvað sem til er í því er ráðgert að fundur á vegum nefndarinnar verði haldinn næstkomandi laugardag og þá verði tillaga lögð fram, ef ekki verður búið að kynna hana áður.
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Tengdar fréttir Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Sjálfkjörið var í kjörnefnd Varðar sem sér um uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum. Allir núverandi borgarfulltrúar sem Vísir hefur náð tali af vilja aftur í framboð, ekki náðist í einn. Oddviti segist finna gríðarlegan áhuga fólks á því að fá sæti á lista flokksins. 17. janúar 2026 07:02 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira
Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Sjálfkjörið var í kjörnefnd Varðar sem sér um uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum. Allir núverandi borgarfulltrúar sem Vísir hefur náð tali af vilja aftur í framboð, ekki náðist í einn. Oddviti segist finna gríðarlegan áhuga fólks á því að fá sæti á lista flokksins. 17. janúar 2026 07:02