Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Kjartan Kjartansson skrifar 23. febrúar 2026 10:32 Rob Jetten gengur glaðbeittur upp tröppur konungshallarinnar nærri Haag þegar hann sór embættiseið í morgun. AP/Peter Dejong Rob Jetten varð yngsti forsætisráðherra í sögu Hollands þegar hann sór embættiseið í dag. Hann stýrir minnihlutastjórn þriggja flokka tæpum fjórum mánuðum eftir þingkosningar þar sem flokkur Jetten vann nauman sigur á fjarhægrimönnum.
Jetten, sem er 38 ára gamall, sór embættiseið sinni í konungshöllinni við Haag í morgun. Vilhjálmur Alexander konungur óskaði honum velfarnaðar á „óvissutímum“, að sögn AP-fréttastofunnar. Auk D6, miðjuflokksins sem Jetten leiðir, eiga Kristilegi demókrataflokkurinn og Frelsis- og lýðræðisflokkur þjóðarinnar sæti í ríkisstjórninni. Báðir síðarnefndur flokkanna eru miðhægriflokkar. Saman eru flokkarnir þrír með 66 þingsæti af 150. Því mun mæða á Jetten að semja við aðra flokka á þingi til þess að stjórnarmál fái brautargengi. Óstöðugleiki hefur einkennt hollensk stjórnmál að undanförnu. Þingkosningarnar í vetur voru þær fjórðu frá 2017. D6-flokkur Jettens hafði nauman sigur á Frelsisflokki Geerts Wilders og urðu úrslitin ekki endanlega ljós fyrr en öll póstatkvæði höfðu verið talin. Stjórn Jetten tekur við völdum þegar fjögur ár eru liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Hann hefur heitið því að styðja áfram varnarbaráttu Úkraínumanna og að verja auknu fé í eigin landvarnir Hollands í skugga ógnarinnar úr austri.
Holland Kosningar í Hollandi Tengdar fréttir Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Þrír stjórnmálaflokkar hafa náð samkomulagi um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi en stjórnarflokkarnir munu þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka til að ná málum í gegn. Rob Jetten, leiðtogi miðjuflokksins D66 sem er hliðhollur Evrópusambandinu, segir samstarfsflokkana vera ólma í að hefjast handa við stjórnvölinn eftir langar og flóknar viðræður um stjórnarmyndun. 28. janúar 2026 08:41 Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Frjálslyndi miðjuflokkurinn D66 hlaut flest atkvæði í hollensku þingkosningunum sem fram fóru á miðvikudaginn. Hollenskir fjölmiðlar greindu frá nýjustu tölum upp úr hádegi og er ljóst, þegar búið er að telja nær öll atkvæði, að Frelsisflokkurinn, undir stjórn Geert Wilders, getur ekki fengið fleiri atkvæði en D66. 31. október 2025 12:56 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Þrír stjórnmálaflokkar hafa náð samkomulagi um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi en stjórnarflokkarnir munu þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka til að ná málum í gegn. Rob Jetten, leiðtogi miðjuflokksins D66 sem er hliðhollur Evrópusambandinu, segir samstarfsflokkana vera ólma í að hefjast handa við stjórnvölinn eftir langar og flóknar viðræður um stjórnarmyndun. 28. janúar 2026 08:41
Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Frjálslyndi miðjuflokkurinn D66 hlaut flest atkvæði í hollensku þingkosningunum sem fram fóru á miðvikudaginn. Hollenskir fjölmiðlar greindu frá nýjustu tölum upp úr hádegi og er ljóst, þegar búið er að telja nær öll atkvæði, að Frelsisflokkurinn, undir stjórn Geert Wilders, getur ekki fengið fleiri atkvæði en D66. 31. október 2025 12:56