Atvinnulíf

Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það að tala um fjarvinnu er orðið of mikil einföldun. Réttara er að tala um snjallvinnu sem byggir á meiri sveigjanleika í starfi, þótt viðvera sé til dæmis á vinnustaðnum. Að tala um hefðbundna vinnuviku í klukkustundum mun úreldast.
Það að tala um fjarvinnu er orðið of mikil einföldun. Réttara er að tala um snjallvinnu sem byggir á meiri sveigjanleika í starfi, þótt viðvera sé til dæmis á vinnustaðnum. Að tala um hefðbundna vinnuviku í klukkustundum mun úreldast. Vísir/Getty

Frá Covid hefur atvinnulífið um allan heim verið að aðlaga sig að breytingum. Fyrst varð fjarvinna þekkt fyrirbæri. Hafði reyndar verið það lengi en í heimsfaraldri lærði atvinnulífið einfaldlega í heild sinni á fjarvinnu.

Eftir Covid kom síðan hybrid; eða blandaða fyrirkomulagið. Þar sem starfsfólk starfar að hluta til í fjarvinnu en að hluta til á vinnustaðnum.

Nú tölum við líka um snjallvinnu. Sem sumir misskilja sem hybrid fyrirkomulagið. En það er ekki það sama því það sem snjallvinna þýðir er í raun fyrirkomulag þar sem viðvera eða vinnustundir skipta ekki máli heldur framleiðni, árangur og niðurstöður. 

Það hvernig fólk nær árangri eða nær að vinna verkefnin sín er ekki samkomulagsatriði, heldur aðeins það traust frá vinnuveitanda til starfsmannsins að X sjái um ákveðin verkefni. 

Voðalegar flækjur eru þetta, stynja nú eflaust sumir. Er ekki bara hægt að fara aftur í klukkan níu til fimm eða átta til sex eða?

Fyrir utan það: Hvað verður um styttingu vinnuvikunnar ef allir fara að vinna snjallvinnu?

Í raun er svo sem ekkert verið að lýsa því yfir að allir fari að vinna snjallvinnu. Heldur frekar að útskýra hversu breytt landslagið er. Þar sem þekktir vinnutímar yfir vikuna; dagvinna, næturvinna, helgarvinna, aukavinna og svo framvegis, eru í raun allt að úreldast sem einu formin.

Að tala um „hefðbundna“ vinnuviku í klukkustundum talið verður því ekki hægt mikið lengur.

Það sem koma skal verður nefnilega alls konar. Hið gamla og hið nýja og eflaust meira að segja eitthvað sem ókomið er og óþekkt enn. ´

Kannski bara klæðskerasniðið?

Þessu til stuðnings má benda á niðurstöður úr alþjóðlegri könnun Gallup frá í fyrra sem sýnir að í framtíðinni mun Z-kynslóðin falast eftir störfum sem einkennast af:

  • Sveigjanleika
  • Blönduðu vinnufyrirkomulagi (ekki endilega aðeins hybrid-formið þó)
  • Félagslegum tengslum
  • Sjálfstæði í vinnu og skipulagi.

Tengdar fréttir

Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda

„Það sem er athyglisvert er að fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda í fimm ár eða lengur. Og spurningin er þá: Ef svo verður, mun þetta fólk snúa til baka?“ spyr Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri rannsóknarfyrirtækisins Prósent.

Z kyn­slóðin er allt öðru­vísi en eldri kyn­slóðir og mun breyta öllu

„Við þurfum alltaf að taka samtalið. Við þurfum alltaf að passa að vera í samráði við unga fólkið því að þau munu breyta öllu. Z kynslóðin, sem nú er 10 til 27 ára, er kynslóð sem er allt öðruvísi en kynslóðin sem er ríkjandi stjórnendahópur í dag,“ segir Anna Steinsen einn eigandi KVAN.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×