Hugrekki krefst nafns – nafnleynd krefst einskis Liv Åse Skarstad skrifar 18. febrúar 2026 11:17 Það er sérstök tegund hugrekkis sem felst í því að gagnrýna annað fólk opinberlega. En það hugrekki hlýtur að byrja á einu einföldu atriði: að setja eigið nafn undir orðin sín. Þegar höfundur kýs þess í stað að fela sig á bak við dulnefni, á sama tíma og hann dregur í efa heilindi, hvatir og jafnvel geðslag nafngreindra einstaklinga, verður umræðan sjálfkrafa annars eðlis. Þá hættir hún að vera málefnaleg og verður að einhverju sem líkist frekar upphrópunum úr felustað en opnum skoðanaskiptum fólks sem er tilbúið að standa við orð sín. Grein Svarthöfða, sem ber yfirskriftina „Vonlaust verkefni hjá Framsókn: formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt“, er því miður dæmi um þetta. Þar er ekki leitast við að ræða stefnu, málefni eða framtíðarsýn. Þess í stað er því haldið fram að það eitt að bjóða sig fram til forystu í stjórnmálaflokki sé merki um sjálfseyðingarhvöt eða glámskyggni. Slíkur málflutningur er ekki málefnalegur heldur einfaldlega rætinn. Það er eitt að gagnrýna stjórnmálaflokk, stöðu hans eða ákvarðanir. Slík umræða er bæði eðlileg og nauðsynleg. En það er eitthvað allt annað þegar umræðan snýst ekki lengur um málefni, heldur um að gera lítið úr fólki og gera lítið úr sjálfri ákvörðun þess að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Sérstaklega þegar það er gert í skjóli nafnleyndar. Það er hreint út sagt ógeðfellt að sjá nafngreinda einstaklinga, sem hafa helgað stóran hluta ævi sinnar opinberri þjónustu, afgreidda með þeim hætti að hvatir þeirra séu gerðar tortryggilegar og framlag þeirra gert hlægilegt. Þetta er ekki gagnrýni sem byggir á rökum. Þetta er umræða sem minnir frekar á illgjarnt bæjarslúður en ábyrga þjóðfélagsumræðu. Líklegast er það einmitt svona umræða sem gerir það að verkum að margt hæft fólk hikar við að stíga fram. Þegar það eitt að bjóða sig fram til forystu getur kallað yfir sig slíka fyrirlitningu, skrifaða af nafnlausum höfundi sem ber enga ábyrgð á eigin orðum, er ekki sjálfgefið að fólk sé tilbúið að setja sig í þá stöðu. Er þetta sé sú umræða sem við viljum? Finnst okkur þetta í lagi? Viljum við samfélag þar sem fólk sem stígur fram er dregið niður með dylgjum og háði? Þar sem auðveldara er að brjóta niður en að byggja upp? Slík nálgun er heldur ekki til þess fallin að vekja traust. Traust byggist ekki upp með því að gera lítið úr öðrum. Það byggist upp með heiðarleika, sanngirni og þeirri einföldu reglu að vera tilbúin að standa við eigin orð. Við megum hafa mismunandi skoðanir á Framsóknarflokknum. Við megum gagnrýna stöðu hans, stefnu og forystu. En að halda því fram að það sé einhvers konar „harakiri“ að vilja leiða flokkinn segir meira um viðhorf höfundar en raunveruleikann. Stjórnmál snúast ekki um að stíga aðeins fram þegar allt leikur í lyndi. Þau snúast um að vera tilbúin að taka ábyrgð, líka þegar á móti blæs. Saga stjórnmálanna er full af dæmum um hreyfingar sem hafa misst fylgi, endurskoðað sig og byggt sig upp að nýju. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það gerist vegna þess að fólk stígur fram. Fólk sem, eins og við öll, er að reyna sitt besta. Við þurfum ekki fleiri nafnlausar raddir sem grafa undan. Við þurfum fleiri sem þora að standa með nafni, taka þátt í málefnalegri umræðu og leggja sitt af mörkum af heilindum. Það er þar sem raunverulegt hugrekki býr.Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar og frjálsra á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar