Að „fara í ræturnar“, val Samfylkingarinnar í Reykjavík við skipan á framboðslista Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 11:32 Þegar Kristrún Frostadóttir kom eins og stormsveipur inni Samfylkinguna með hópi ungra jafnaðarmanna, var eitt hennar áhersluatriða að Samfylkingin þyrfti að „fara í ræturnar“, Jafnaðarstefnuna. Þetta hitti rækilega í mark eins og alþjóð veit. Nú er tekist á um skipan framboðslista flokksins í Reykjavík. Eitt ágreiningsefni þegar þessi grein er rituð 18.2., mun vera hvaða sæti Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, sem stofnað var af föngum á Litla hrauni árið 2005, skuli skipa. Hann lenti í 7. sæti í prófkjöri XS, með rúm 1700 atkvæði- (4.800 tóku þátt). Þetta sæti er ekki bindandi fyrir uppstillinganefnd, en er prýðilegur árangur samt. Guðmundur hefur farið fram á að fá að halda því sæti, en hlýtur í bili amk. ekki náð fyrir augum uppstillinganefndar, sem skv. mínum upplýsingum telur sig vera með í hendi „stórstjörnu“ frambjóðenda sem trompi hæfileika og mannkosti Guðmundar Inga margfalt.Gott og vel, en hverjir eru mannkostir Guðmundar og getur verið að hann sé nær „rótum Jafnaðarstefnunnar“ en ýmsir sem þegar hafa tryggt sér sæti á framboðslistanum? Ég kynntist Guðmundi þegar hann afplánaði langa refsivist á Litla Hrauni. Ég starfaði við HÍ og einhver hafði bent honum á að tala við mig. Guðmundur hafði þá lokið stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands í fjarnámi úr fangelsinu, gengið vel og langaði til að fara í frekara fjarnám við HÍ. Ég kannaði það fyrir hann en því miður var spænska, eina fjarnámið sem honum stóð til boða í HÍ á þeim tíma. Ég hef fylgst með honum síðan. Hitti hann aftur þegar hann var kominn „út“ og var byrjaður í BA námi í félagsráðgjöf, sem hann hefur nú lokið og lýkur þar meistaranámi í vor, ásamt námskeiðum í opinberri stjórnsýslu, stjórnunanámi við Háskólann á Bifröst ofl. Samhliða náminu hefur Guðmundur verið ötull við að byggja upp og vera talsmaður áðurnefndra hagsmunasamtaka. Ég leyfi mér að fullyrða að fáir hafa verið jafn áberandi í opinberri umræðu af hálfu fyrrum fanga og þeirra aðstandenda. Hann hefur einnig starfað við gistiheimili heimilislausra og vafalaust fleira sem ég þekki ekki. Hann er því mikilvæg fyrirmynd þeirra sem hefur skrikað fótur á beinu brautinni, en vilja berjast til betra lífs. Hann hefur undanfarin 6 ár verið virkur í Samfylkingunni og er nú formaður Rósarinnar, sem er eitt aðildarfélaga flokksins. Fyrir Samfylkinguna er heiður að maður eins og Guðmundur sækist eftir framboði á hennar vegum. Hann er akkúrat sú tenging við þá sem hafa átt undir högg að sækja í okkar samfélagi, sem flokkurinn þarfnast og á að berjast fyrir. Höfundur er einn stofnenda Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar