Byggjum fleiri skautasvell Friðjón B. Gunnarsson skrifar 17. febrúar 2026 15:32 Skautaíþróttir hafa verið stundaðar í Reykjavík, með hléum, frá árinu 1873. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi íþróttafélag á landinu, stofnað formlega 1873 en endurvakið árið 1893. Félagið var svo endurvakið öðru sinni árið 1938. Árið 1967 mættust úrvalslið Skautafélags Reykjavíkur og Akureyrar í fyrstu eiginlegu ísknattleiksviðureigninni. Í áratugi barðist félagið fyrir því að byggt yrði vélfryst skautasvell. Sú barátta skilaði árangri í desembermánuði 1990 þegar vélfryst skautasvell var opnað í Laugardal. Við það tækifæri var ísknattleiksfélagið Björninn einnig stofnað. Ekki var byggt yfir svellið fyrr en átta árum síðar eða árið 1998 þegar Skautahöllin í Laugardal var fyrst tekin í notkun. Fullyrða má að alger stöðnun hafi orðið í uppbyggingu íþróttamannvirkja fyrir skautaíþróttir síðustu 28 ár, ef frá er talið skautasvell á 2. hæð Egilshallarinnar en þar var um einkaframkvæmd að ræða. Gríðarleg aukning hefur orðið á fjölda iðkenda í skautaíþróttum á framangreindu tímabili án þess að nokkuð hafi verið gert af hálfu ríkis eða sveitarfélaga til þess að bæta aðstöðu þessarar mögnuðu íþróttagreinar. Staðreyndin er sú að Íslendingar þurfa fleiri skautasvell. Á landinu eru eingöngu þrjár skautahallir, tvær í Reykjavík og ein á Akureyri. Samkvæmt erlendum viðmiðum ætti að vera ein skautahöll á hverja 25-30 þúsund íbúa. Það er mögnuð staðreynd að þegar fjölnotaíþróttahús er byggt og ákveðið að hafa skautasvell í húsinu, þá nýtist varminn sem verður til við frystinguna til þess að hita upp allt íþróttahúsið. Af því leiðir að öll fjölnotaíþróttahús ættu að vera með skautasvell. Reykjavíkurborg á húsnæði Skautahallarinnar í Laugardal. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) sér um rekstur hússins. Það hefur legið ljóst fyrir um árabil að núverandi húsnæði er fullnýtt nánast upp í rjáfur. Staðan er óviðunandi. ÍBR skiptir ístíma á milli íshokkí, listhlaupa og almennings. Af því leiðir að engan auka ístíma er að fá í húsinu. Þá eru búningsklefar komnir vel til ára sinna og öll aðstaða meira og minna úrelt. Okkur hjá Skautafélagi Reykjavíkur eru færðar þær fréttir, ár eftir ár, að nú styttist óðum í að byggt verði nýtt svell samtengt því eldra ásamt nýrri aðstöðu sem myndi gjörbreyta stöðu félagsins og iðkenda þess. En ár eftir ár gerist ekkert. Byggingin er samt sem áður á forgangslista borgarinnar yfir íþróttamannvirki sem þarf að ráðast í að byggja. Fyrir hönd íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur vil ég bjóða borgarfulltrúum Reykjavíkurborgar í heimsókn í Skautahöllina í Laugardal. Þar getum við gengið með þeim um húsið og sýnt þeim aðstöðuna og hve þörfin er mikil fyrir viðbygginguna. Ég trúi ekki öðru en að borgarfulltrúar vilji hag skautaíþrótta sem mestan og fjölmenni í heimsókn til okkar. Við viljum að staðið verði við gefin fyrirheit og ráðist í að byggja nýtt skautasvell í Laugardal sem allra fyrst. Rétti upp hönd þeir borgarfulltrúar sem eru tilbúnir til þess að beita sér fyrir því að ósk okkar verði að veruleika sem allra fyrst! Höfundur er formaður íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur og hokkípabbi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skautaíþróttir Reykjavík Íþróttir barna Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar