Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2026 12:13 Frá æfingu sem Byltingarvörður Íran hélt í gær. Önnur, að virðist umfangsmeiri, æfing er haldin í dag. EPA/Sepah News Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni.
Hormuz-sund er inngangurinn að Persaflóa en undan ströndum Íran verður sundið einungis fjörutíu til fimmtíu kílómetra breitt. Um tuttugu prósent af allri olíu heimsins er flutt um sundið. Þetta er í fyrsta sinn sem Íranir loka sundinu síðan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, byrjaði að senda umfangsmikinn herafla á svæðið. Eitt flugmóðurskip er á svæðinu og annað er á leiðinni. Þá hafa Bandaríkjamenn sent fjölda herþota og loftvarnarkerfa á svæðið og virðist sem viðbúnaður þeirra í Mið-Austurlöndum sé gífurlegur um þessar mundir. Viðræður milli bandarískra og íranskra erindreka hófust í Genf í Sviss í dag. Þegar viðræðurnar voru að hefjast tilkynntu ríkismiðlar Íran að heræfingar væru hafnar á sundinu og að eldflaugum hefði verið skotið á svæðinu, samkvæmt AP-fréttaveitunni. Ein viðræðulota hefur átt sér stað milli erindreka frá Bandaríkjunum annars vegar og klerkastjórnarinnar hins vegar. Þær fóru fram í Óman en skiluðu engri niðurstöðu. Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sendi í morgun út yfirlýsingu þar sem hann sagði að bandarísk flugmóðurskip væru hættuleg en að vopnin sem sendu þau skip á hafsbotn væru enn hættulegri. Þá sagði klerkurinn að Bandaríkjamönnum væri ómögulegt að fella Íran. Sjá einnig: Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Stutt er síðan íranskir sjóliðar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip, sem siglt var undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi. Það tókst ekki en Íranar hafa áður stöðvað skip á svæðinu og tekið yfir stjórn þeirra. Al Jazeera hefur eftir Alireza Tangsiri, yfirmanni flota byltingarvarðarins, að Íranir geti hæglega lokað Hormuz-sundi, verði þeim skipað að gera það. Sjóliðar myndu nota allt önnur vopn en hafa áður verið sýnd á æfingum.
Íran Bandaríkin Donald Trump Hernaður Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira