Raunveruleg saga Rothschild: Stríð, goðsagnir og ævintýraleg auðæfi Atli Ísleifsson skrifar 16. febrúar 2026 13:02 Orrustan við Waterloo 1815 er eins konar upprunasaga margra goðsagna um Rothschild. Í vinsælli frásögn er Nathan Rothschild sagður hafa vitað úrslitin á undan öllum og látið líta út fyrir að Bretar hefðu tapað með því að selja ríkisskuldabréf í stórum stíl. Waddesdon Manor í Buckingham-skíri er eitt af setrum í eigu Rothschild-stofnunarinnar. Wikipedia Commons Langlífar sögusagnir halda því fram að Rothschild-bankafjölskyldan stýri helmingi allra auðæfa jarðar, fjármagni gjarnan báðar hliðar í styrjöldum og maki þannig krókinn.
Á netinu má jafnvel finna fullyrðingar um að ættin eigi 500 trilljónir evra, stjórni seðlabönkum heimsins og að aðeins „hinir ósigrandi þrír“ standi utan kerfisins: Norður-Kórea, Íran og Kúba. Kenningarnar tengja Rothschild-fjölskylduna líka við hina meintu Nýju heimsskipan (NWO) og alræði hennar. Í nýjasta þætti Skuggavaldsins kafa prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir ofan í söguna á bak við mýtuna sem reynist allfjarri þeim heimsyfirráðum sem samsæriskenningarnar lýsa. Upphaf ættarveldis Raunveruleg saga ættarinnar hefst í gyðingahverfinu í Frankfurt á 18. öld. Þar ólst ættfaðirinn Mayer Amschel Rothschild upp við erfiðar aðstæður í húsi sem bar merki rauðs skjaldar sem ættin dregur nafn sitt af, Zum Roten Schild. Gyðingar voru víða útilokaðir frá iðngildum og hefðbundnum atvinnugreinum á sama tíma og kristnir menn höfðu um aldir litið á vaxtatöku sem siðferðilega vafasama. Í þeirri stöðu varð lánastarfsemi og milliganga um fjármál eitt af fáum sviðum þar sem gyðingar gátu tryggt sér afkomu og skapað tengsl. Lykillinn að uppgangi Mayers var að hann komst í náin viðskipti við Vilhjálm prins af Hesse sem græddi stórfé á því að leigja Bretum hermenn í frelsisstríði Bandaríkjanna. Mayer sá síðan um að ávaxta fé prinsins og koma því í skjól þegar Napóleon fór að umbylta Evrópu. Til að stækka veldið sendi Mayer syni sína fimm til helstu höfuðborga Evrópu og lagði grunn að því sem má kalla fyrstu fjölþjóðlegu bankasamsteypuna. Með hraðboðum, hestum, bátum og bréfdúfum, nokkurs konar interneti 19. aldar, byggðu bræðurnir upp upplýsingaforskot sem nýttist meðal annars í Napóleonsstríðunum. Fjölskyldan græddi gríðarlega á tímabilinu og jókst þar með líka pólitískt vægi þeirra. Waterloo-mýtan krufin Orrustan við Waterloo 1815 er eins konar upprunasaga margra goðsagna um Rothschild. Í vinsælli frásögn er Nathan Rothschild sagður hafa vitað úrslitin á undan öllum og látið líta út fyrir að Bretar hefðu tapað með því að selja ríkisskuldabréf í stórum stíl. Þetta hafi hrundið af stað skelfingu í kauphöllinni sem leiddi til algjörs hruns bréfanna og þá hafi Nathan keypt allt upp á útsöluverði, áður en sigurfréttir bárust. Í Skuggavaldinu er þessi saga sett í samhengi og dregin í efa. Hún festist í sessi á 19. öld í andgyðinglegum áróðri, þar sem Rothschild var gerður að táknmynd „leynilegs fjármálavalds“ sem græði á óförum annarra. Seinna var hún endurunnin í enn grófari áróðri, meðal annars hjá nasistum, og varð þannig eins konar mót fyrir seinni tíma samsæriskenningar um gyðinga og bankakerfið. Sagan lifir líka vegna þess að hún smellpassar inn í þá hugmynd að einhverjir „bak við tjöldin“ stýri stríðum og kreppum. Nathan hafði vissulega forskot því hann fékk verðmætar upplýsingar á undan öðrum og hagnaðist gríðarlega á því, en ekki endilega með því svindli sem mýtan lýsir. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Bretland Tengdar fréttir Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Yfirleitt er ekki eftirsóknarvert að verða skotspónn samsæriskenninga. Orðspor skaðast, tortryggni magnast og allt samtal verður eldfimt. Denver-alþjóðaflugvöllurinn í Colorado er þó óvenjuleg undantekning, því þar tókst stjórnendum smám saman að snúa vörn í sókn og gera samsæriskenningar um flugvöllinn hluta af eigin ímynd. 2. febrúar 2026 13:02 Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölda opinberra skýrslna hefur ekki enn tekist að ráða gátuna um hið svokallaða Havana-heilkenni. Hundruð starfsmanna í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna hafa lýst lamandi svima, nístandi höfuðverk, suði í eyrum og minnistruflunum. Málið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda. 19. janúar 2026 10:33 Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Seint á árinu 2016 fóru bandarískir útsendarar í Havana að tilkynna um óútskýrð veikindi sem síðar fengu heitið Havana-heilkennið. Einkennin voru meðal annars höfuðverkur, svimi, jafnvægisleysi, minnistruflanir og skynjun á undarlegum hljóðum eða þrýstingi í höfði. 5. janúar 2026 13:48 Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Seint á árinu 2016 fóru bandarískir útsendarar í Havana að tilkynna um óútskýrð veikindi sem síðar fengu heitið Havana-heilkennið. Einkennin voru meðal annars höfuðverkur, svimi, jafnvægisleysi, minnistruflanir og skynjun á undarlegum hljóðum eða þrýstingi í höfði. 5. janúar 2026 13:48 Hvers vegna halda 9/11-samsæriskenningar enn velli? Fáir atburðir samtímans hafa skapað jafn mikla tortryggni og árásirnar 11. september 2001. Í mörgum samsæriskenningum eru bandarísk stjórnvöld sögð hafa annaðhvort skipulagt árásirnar eða vísvitandi látið þær gerast, til að fá átyllu til hernaðar í Írak. 24. nóvember 2025 10:06 Mest lesið Upplifði létti þegar mamma dó Lífið Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Lífið Bakaríið í beinni á Vísi Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Jenner segist hafa veikst af Ozempic Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Þjóðkirkjan sé tímaskekkja Oddvitaáskorunin: Freistandi að setja nokkur mál í íbúakosningu Upplifði létti þegar mamma dó Bakaríið í beinni á Vísi Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Oddvitaáskorunin: Maturinn þarf að vera fallegur og litríkur Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Jenner segist hafa veikst af Ozempic Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Oddvitaáskorunin: Alæta á tónlist Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Reyndi við lúmskar Friends-spurningar Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Ungir skáksnillingar á Laufásborg unnu til verðlauna á EM Oddvitaáskorunin: Fær ekki lengur að velja tónlistina á viðburðum Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Yfirleitt er ekki eftirsóknarvert að verða skotspónn samsæriskenninga. Orðspor skaðast, tortryggni magnast og allt samtal verður eldfimt. Denver-alþjóðaflugvöllurinn í Colorado er þó óvenjuleg undantekning, því þar tókst stjórnendum smám saman að snúa vörn í sókn og gera samsæriskenningar um flugvöllinn hluta af eigin ímynd. 2. febrúar 2026 13:02
Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölda opinberra skýrslna hefur ekki enn tekist að ráða gátuna um hið svokallaða Havana-heilkenni. Hundruð starfsmanna í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna hafa lýst lamandi svima, nístandi höfuðverk, suði í eyrum og minnistruflunum. Málið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda. 19. janúar 2026 10:33
Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Seint á árinu 2016 fóru bandarískir útsendarar í Havana að tilkynna um óútskýrð veikindi sem síðar fengu heitið Havana-heilkennið. Einkennin voru meðal annars höfuðverkur, svimi, jafnvægisleysi, minnistruflanir og skynjun á undarlegum hljóðum eða þrýstingi í höfði. 5. janúar 2026 13:48
Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Seint á árinu 2016 fóru bandarískir útsendarar í Havana að tilkynna um óútskýrð veikindi sem síðar fengu heitið Havana-heilkennið. Einkennin voru meðal annars höfuðverkur, svimi, jafnvægisleysi, minnistruflanir og skynjun á undarlegum hljóðum eða þrýstingi í höfði. 5. janúar 2026 13:48
Hvers vegna halda 9/11-samsæriskenningar enn velli? Fáir atburðir samtímans hafa skapað jafn mikla tortryggni og árásirnar 11. september 2001. Í mörgum samsæriskenningum eru bandarísk stjórnvöld sögð hafa annaðhvort skipulagt árásirnar eða vísvitandi látið þær gerast, til að fá átyllu til hernaðar í Írak. 24. nóvember 2025 10:06