Þúsundir Íslendinga hársbreidd frá því að missa bílprófið út af ADHD-lyfjum Ómar R. Valdimarsson skrifar 13. febrúar 2026 11:30 Á hverjum einasta degi vakna þúsundir Íslendinga, skella í sig ADHD-lyfjunum sínum, skutla börnunum í skólann og bruna svo í vinnuna. Næstum allir þessara einstaklinga eru aðeins einu stoppi hjá löggunni frá því að missa bílprófið í allt að 18 mánuði. Af hverju? Jú, út af því að fæstir eru með læknisvottorð í vasanum, sem staðfestir að viðkomandi sé fær um að aka bíl þrátt fyrir að taka ADHD-lyfin sín. Lögin gera nefnilega engan sérstakan greinarmun á fullkomlega löglegum ADHD-lyfjum og amfetamíni sem selt er í dimmum húsasundum. Samkvæmt 50. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er enginn sem er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja hæfur til að stjórna ökutæki. Mælist slíkt efni í blóði ökumanns telst hann sjálfkrafa óhæfur til aksturs. Þetta er hlutlægt viðmið – það skiptir ekki máli hvort viðkomandi upplifi sig vera með allt á hreinu. Og afleiðingarnar eru ekkert djók: Svipting ökuréttar í allt að 18 mánuði og að lágmarki 100.000.- króna sekt. En í 8. mgr. 101. gr. er undanþága. Ökumaður sem notar lyfseðilsskyld lyf sem er ávísað af lækni geta sloppið undan þessu öllu saman – en bara ef viðkomandi hefur í vasanum gilt læknisvottorð sem staðfestir að hann sé hæfur til aksturs þrátt fyrir lyfjanotkun og hefur fengið útgefið lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands (sem flestir á ADHD-lyfjum eru með). Einn af hverjum 10 fullorðnum Íslendingum á aldrinum 18–44 ára tekur ADHD-lyf daglega. Þessi lyf innihalda amfetamínskyld efni – sömu efni og geta leitt til sviptingar ökuréttar ef þau mælast í blóði ökumanns. Langflestir þessara notenda hafa aldrei heyrt af lagaákvæðinu sem gæti haft af þeim bílprófið – og enn færri vita hvernig þeir geta sloppið við að eiga það á hættu! Ísland í sérflokki á heimsvísu Árið 2023 notuðu 14.7% ungmenna á aldrinum 7–17 ára ADHD-lyf. Hjá fullorðnum 18–44 ára var hlutfallið 10.2% – 9.4% karla og 11% kvenna, skv. niðurstaðna rannsóknar sem birt var í Læknablaðinu árið 2024. Frá árinu 2010 hefur notkun aukist um 414% hjá körlum og 543% hjá konum á þessu aldursskeiði. Íslendingar eiga vitaskuld höfðatölu-heimsmetið hér eins og í flestum öðrum greinum og frændur okkar í Noregi og Svíþjóð eiga ekki séns í okkur: Við notum 13 sinnum meira af ADHD-lyfjum en Norðmenn og þrisvar sinnum meira en Svíar. Árið 2023 var notkun hér á landi 66,5 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag – þreföld meðaltalsnotkun Norðurlandanna. Langflestir af nýjum notendum ADHD-lyfja – eða heil 80% – eru fullorðnir einstaklingar sem aka til vinnu, sækja börn í skóla og lifa annars eðlilegu lífi, þar sem akstur er órjúfanlegur hluti hefðbundnar rútínu hvers einstaklings. Hópurinn fer stækkandi, enda biðu 2.100 manns eftir ADHD-greiningu áramótin 2023-24, skv. áðurnefndri grein. Af þessum hópi mega 1.700 manns gera ráð fyrir því að fá ADHD-greiningu, þegar að þeim kemur. Stíf dómaframkvæmd Dómstólarnir hafa verið óhræddir við að sakfella einstaklinga á ADHD-lyfjum og klippa hjá þeim ökuskírteinið, sem bera því við að hafa fengið lyfinu ávísað frá lækni. Þannig sakfelldi Landsréttur ökumann sem bar þessu við í máli nr. 769/2022. Rétturinn benti á að viðkomandi hefði ekki getað framvísað læknisvottorði þegar löggan stoppaði hann. Undanþága laganna gat því aldrei komið til álita. Í fjölda dóma héraðsdómstólanna hefur það sama verið uppi á teningnum. Sakfellingar til hægri og vinstri þegar ökumenn eru ekki með vottorð frá lækni í vasanum. Í einstaka tilfellum eru einstaklingar sýknaðir. Þannig eru til dómar þar sem styrkur viðkomandi lyfs sé innan læknisfræðilegra marka eða að viðkomandi hafi myndað þol gegn lyfinu við langvarandi notkun og sé því ekki ófær um að sitja undir stýri á ökutæki. Þetta eru hins vegar undantekningar sem sanna meginregluna: Ekkert vottorð og ekkert lyfjaskírteini = ekkert bílpróf, þó svo að lyfin séu tekin nákvæmlega eins og læknirinn mældi fyrir um. Einhverra hluta vegna virðist sem þeir læknar sem ávísa ADHD-lyfjum séu ekki meðvitaðir um að sjúklingarnir þeirra séu aðeins einu löggustoppi frá því að missa bílprófið. Að henda í eitt læknisvottorð samhliða lyfseðlinum er þannig á engan hátt sjálfgefin hluti af ferlinu. Líklega stafar þetta fyrst og fremst af vanþekkingu á lagaumhverfinu, en erfitt er að fallast á að vanþekkingin sé afsakanleg. Það hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu til lækna, að þeir séu meðvitaðir um hvaða lagalega hætta er samfara lyfjaávísunum þeirra og að útgáfa vottorða af þessu tagi sé hluti af því sem gerist, þegar lyfjunum er ávísað fyrst til þeirra sem greindir eru með ADHD. Þetta þarf að breytast – strax Fyrst og fremst þurfa læknar sem ávísa ADHD-lyfjum að taka ábyrgð. Læknisvottorð um aksturshæfni á að vera sjálfsagður hluti af hverri einustu ávísun á amfetamínskyldri meðferð. Þetta má ekki vera eitthvað sem sjúklingarnir þurfa að þekkja, vita og biðja um, heldur þarf þetta að vera skylda sem lögð er á herðar viðkomandi lækna. Þar til þetta breytist er heppilegra fyrir þær þúsundir Íslendinga sem taka þessi lyf daglega geri ákveðnar ráðstafanir: Panta tíma hjá lækninum sínum, óska eftir vottorðinu og taka svo strætó þegar þeir ætla sækja það. Höfundur er hæstaréttarlögmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ADHD Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun