Svar við “Bréf til Láru” Lára G. Sigurðardóttir skrifar 11. febrúar 2026 18:02 Í „Bréfi til Láru“ er talað um frelsi og einstaklingsábyrgð. Þetta hljómar vel því flest okkar lítum á þessa þætti sem hornsteina góðra samfélaga. En þegar samhengið er skoðað sést að hér leynist úlfur í sauðagæru: áfengi er ekki venjuleg neysluvara og afleiðingarnar eru ekki einkamál þeirra sem drekka. Af hverju er áfengi ekki venjuleg neysluvara? Áfengi á þátt í myndun um 200 sjúkdóma og áverka og með því einn helsti áhættuþáttur ótímabærra andláta. Áfengi er algengasta orsök dauða hjá ungum körlum á aldrinum 25–59 ára og valdur að 13,5% dauðsfalla hjá 20–39 ára. Sem dæmi lést Amy Winehouse úr áfengiseitrun, aðeins 27 ára gömul. Afleiðingar áfengisneyslu eru þó ekki bundnar við neytandann. Áfengi tengist slysum, ofbeldi, sjálfsvígum og morðum, fósturskaða, félagslegum vandamálum, minnkaðri framleiðni o.fl. Börn, fjölskyldur og samfélagið allt bera kostnaðinn, hvort sem þau kjósa að drekka eða ekki. Talnaleikir áfengissalans Elías heldur því fram að áfengisneysla hafi dregist saman og sér til stuðnings dregur hann saman litla ómarktæka sveiflu í neyslu sem líklega tengist COVID-faraldrinum þegar neysla jókst tímabundið. Við þurfum að horfa á langtímaþróun og samkvæmt Hagstofunni (ásamt OECD sem vinnur tölur sínar frá upplýsingum Hagstofunnar) sést berlega að neyslan hefur aukist um tæpan líter af hreinum vínanda síðustu tíu árin, sjá mynd. Þá er varhugavert að á meðan áfengisneysla dregst saman í flestum öðrum OECD löndum þá er hún að aukast hjá okkur, sjá mynd. Það er eðlilegt að spyrja sig af hverju neysla hefur aukist á meðan sala hefur verið í höndum ríkisins. Þarna má bersýnilega gera betur. Elías nefnir sem dæmi auglýsingar frá vínbúðinni. Þótt áfengið sjálft sé vissulega ekki auglýst þá erum við þarna á rangri leið. Eins má endurskoða fjölda útsölustaða Vínbúðarinnar, sem Elías telur of mikinn eða 15 búðir per 100.000 íbúa. Þarna er þó svolítill talnaleikur á ferðinni. Í fyrsta lagi telur hann með afhendingarstaði á netpöntunum sem eru ekki búðir. Í öðru lagi erum við með 5 búðir per 100.000 íbúa á Höfuðborgarsvæðinu, en ekki 15 og er það ansi mikill munur. Þar sem við búum í dreifbýlu landi er hver vínbúð á landsbyggðinni fljót að hækka meðaltalið. Kosturinn er hinsvegar sá við Vínbúðina að hún sendir ekki heim, þú þarft alltaf að sækja vöruna í Vínbúð eða afhendingarstað. Ef við erum þeirrar skoðunar að Vínbúðin sé ekki að ná markmiðum sínum í núverand rekstri þá er lausnin að bæta úr því en ekki afhenda söluna til einkaaðila. Þegar vísað er í samfélagslegan kostnað upp á „28 milljarða“ (en ekki 100 milljarða) er verið að tala um takmarkaðan, beinan útgreiddan kostnað. Þegar allur samfélagslegi kostnaðurinn er metinn, þ.m.t. framleiðslutap, ótímabær dauðsföll og glötuð lífár, er talan yfir 100 milljarðar. Þessi tala samræmist m.a. skýrslum frá Svíþjóð og Noregi sem í raun áætla kostnaðinn vera nær 150 milljörðum ef við heimfærum þær upplýsingar á Ísland. Samkvæmt þessum gögnum kostar áfengisneysla okkur rúmlega 200 þúsund krónur á hvern fullorðinn Íslending á ári - hvort sem hann drekkur eða ekki. Munurinn er ekki falinn í gögnum, heldur í því hvort við horfum á brot af reikningnum eða tökum allan reikninginn með í myndina. Frelsi snýst ekki um réttinn til að skaða aðra. Þegar 100 milljarða samfélagskostnaður er settur undir sama hatt og „frelsi“, er ekki verið að verja einstaklinginn - heldur viðskiptahagsmuni. Aukið aðgengi eykur hagnað seljenda, en kostnaðinn mun samfélagið borga. Óvönduð vinnubrögð Viðskiptablaðsins Elíast vitnar jafnframt í grein sem Viðskiptablaðið birti og ég ákvað að svara ekki opinberlega, en læt svarið sem ég sendi ritstjórninni 8. júlí 2024 fylgja með hér: “Finnst áhugavert niðurlag hjá ykkur, þar sem þið sakið mig um að beita ekki gagnrýnni hugsun en eruð svo sjálf með einhliða skoðun og birtið ekki eina heimild sem tengist áfengisforvörnum. Það er hægt að telja fjölda rangfærslna í ykkar grein. Fyrir það fyrsta eru til þó nokkrar skýrslur sem styðja við tölfræði Stellu og þessir 100 milljarðar eru hóflega reiknaðar…. Ef eitthvað er þá er þessi kostnaður líklega vanreiknaður því áfengi hefur lúmskari áhrif á heilsu en fólk áttar sig almennt á. Svo er ávallt leiðrétt fyrir ferðamönnum í útreikningum þjóðarneyslu áfengis. Ykkur tekst meira að segja að fara með rangt mál í einu áfengisheimildinni sem þið vitnið í (frá sænska upplýsingaráðinu um áfengi) en þar ruglið þið saman hugtökum: 15% er heildartala yfir "unregistered share" og af því er áfengi úr fríhöfunum einungis einn biti af kökunni, að meðaltali um 7,9%. Rétt hefði því verið að segja 7,9% komi úr fríhöfnum. Mér þykir afar lágkúrulegt að þið skrifið ekki undir nafni og vitnið ekki í heimildir, í sama mund og þið sakið mig um að vera ekki starfi mínu vaxin. Sem fjölmiðill berið þið gríðarlega ábyrgð á að móta viðhorf fólks í samfélaginu og ég hefði búist við meiri fagmennsku af ykkar hálfu.” Allir græða á forvörnum en fáir á smásölu einkaaðila Mark Pearson benti okkur á í fyrirlestri sínum á Læknadögum að fyrir hverja krónu sem við setjum í forvarnir uppskerum við 16 krónur í sparnað. Í áfengis- og vímuefnaforvörnum gildir að stjórnvaldsaðgerðir eru áhrifamestar og vegur mest takmarkað aðgengi (ríkiseinkasala, fjöldi sölustaða, opnunartími, aldur), verð, skattlagning og takmörkun markaðssetningar. Fræðsla er mjög neðarlega á listanum. Við náðum frábærum árangri í tóbaksforvörnum og erum meðal þjóða sem reykja sem minnst í heiminum en allur sá árangur er stjórnvaldsaðgerðum að þakka. Við höfum svo upplifað mikið bakslag þegar sala á nikótínvörum var færð í hendur einkaaðila, með þeim hörmulegu afleiðingum að þriðja hvert ungmenni notar nú nikótín daglega. Við þurfum að sýna ábyrgð í verki, standa vörð um lýðheilsu fyrir samfélagið allt og þegna þess. Fyrir áhugasama bendi ég á upptöku af opna málþinginu “Skál fyrir betri heilsu!” sem haldið var í tengslum við Læknadaga og færri komust á en vildu. Fyrirlestrarnir eru stuttir og hver öðrum áhugaverðari. Höfundur er læknir og doktor í lýðheilsuvísindum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lára G. Sigurðardóttir Áfengi Netverslun með áfengi Mest lesið Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Sjá meira
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun