Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. febrúar 2026 07:54 Kristoffersen segir lítið mark takandi á Trump varðandi aðgerðir bandamanna í Afganistan. Getty/Per Ole Hagen Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga.
Kristoffersen bendir á að á Kólaskaga sé að finna mikilvæga innviði Rússlands sem myndu skipta sköpum í mögulegum átökum við Atlantshafsbandalagið, svo sem flugvélar og kafbáta sem bera kjarnorkuvopn. „Við getum ekki tekið þann möguleika af borðinu, þar sem það er enn möguleiki að Rússar gætu gert það til að tryggja að kjarnorkugetu þeirra, getu þeirra til að svara mögulegri árás. Það er einn af þeim möguleikum í norðrinu sem við erum búin undir,“ segir Kristoffersen um möguleikann á tilraun Rússa til frekari landvinninga. Kristoffersen ræddi við Guardian, meðal annars um tilraunir Donald Trump Bandaríkjaforseta til að leggja undir sig Grænland og ummæli hans um að bandamenn hefðu haldið sig til hlés í Afganistan. „Það var ekkert vit í því sem hann sagði og ég veit að allir bandarískir vinir mínir í Afganistan vita það,“ segir Kristoffersen, sem þjónaði sjálfur í Afganistan. Ummælin hefðu þó ekki haft mikli áhrif á hann, þar sem Trump hefði aldrei verið í Afganistan og hann, Kristoffersen, vissi betur. Kristoffersen sagði að þrátt fyrir spennu milli Rússlands og Nató væru Norðmenn og Rússar í samskiptum vegna björgunaraðgerða á Barentshafi. Þá hefur hann mælt með því að koma á boðleiðum til að koma í veg fyrir mögulegan misskilning og stigmögnun, líkt og eru á milli Rússa og Bandaríkjamanna. Hér má finna viðtal Guardian við Kristoffersen.
Noregur Rússland NATO Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira