Viðskipti innlent

Bein út­sending: Verð­launa­af­hending Stjórnverðlaunanna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Verðlaunahafarnir á síðasta ári.
Verðlaunahafarnir á síðasta ári.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhendir Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2026. Veitt verða verðlaun í þremur flokkum og er athöfninni í beinu streymi á Vísi.

Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag á Íslandi með yfir sjö þúsund félaga og ár hvert veita þau Stjórnunarverðlaunin. 

Anna Kristín Kristinsdóttir, formaður stjórnar Stjórnvísi, setur hátíðina klukkan fjögur og gerir Salóme Guðmundsdóttir, formaður dómnefndarinnar, grein fyrir vali dómnefndarinnar á stjórnendum ársins 2026. 

Auk Salóme sitja Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs, Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona og Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, í dómnefndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×