Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 08:56 Vél flugfélagsins SAS átti að fara í loftið frá Brussel á leið til Kaupmannahafnar í gær. Myndin er úr safni. SAS Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar.
TV 2 greinir frá atvikinu í morgun og hefur eftir farþegum úr vélinni, en myndband frá farþega sýnir hvar vélin var komin út í kant við brautina. Flugstjóri hafi upplýst farþega um að vélin hafi „hemlað kröftuglega“ þar sem reynt hafi verið að taka á loft af akbraut, en ekki eiginlegri flugbraut. Anders Bork Hansen var meðal farþega í vélinni en í samtali við TV 2 segist hann hafa verið skelkaður við atvikið, enda hafi vélin verið alveg á leiðinni í flugtak þegar henni var skyndilega bremsað harkalega. „Þegar við vorum komin á það mikinn hraða að hún var við að fara í loftið þá grípa bremsurnar í, allir flipar á vængjunum opnast og vélin fer í bakk svo það hristist allt,“ segir Hansen við TV 2. Samskiptastjóri SAS staðfestir við miðilinn að flugferð frá Brussel til Kaupmannahafnar hafi verið aflýst vegna „óreglulegrar uppákomu“. Þá verði farþegum vélarinnar fundið annað laust flug til að komast áleiðs til Kaupmannahafnar í dag.
Fréttir af flugi Belgía Danmörk Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira