Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Stefán Árni Pálsson skrifar 5. febrúar 2026 15:01 Hilmar er í hörkustandi áttræður. Hilmar Þór arkitekt áttræður lítur út fyrir að vera sextugur. Það að verða áttræður er ekki lengur það sem það var fyrir nokkrum áratugum. Í dag er talað um að áttatíu sé hið nýja sextíu. Og gott dæmi um það eru töffarar eins og Paul McCartney, Rod Stewart og Mick Jagger sem allir eru orðnir áttræðir en hressir.
Hilmar Þór Björnsson arkitekt fagnaði áttræðisafmælinu í fjörutíu ára gömlum jakkafötum sem smellpössuðu á hann enn þá. Vala Matt fór og heimsótti Hilmar Þór og eiginkonu hans Svanhildi og dóttur þeirra Maríu Sigrúnu sjónvarpskonu og fékk að heyra leyndarmálin á bak við unglegt útlit Hilmars. Hilmar er nú hættur að teikna hús og hefur snúið sér að ýmsum áhugamálum, til dæmis skrifum og vangaveltum um borgarskipulagsmál í Reykjavík sem hafa vakið mikla athygli. En þar hefur hann meðal annars bent á hvernig glænýju hverfin í borginni eru byggð það þétt að aðeins örfá bílastæði eru á lóðunum og víða eru hreinlega engin bílastæði fyrir gesti íbúanna. Og er Hilmar einn af örfáum sem tjá sig um þessi mál. Hilmar er mjög hlynntur Borgarlínunni en telur að best væri að hún væri komin áður en farið er í að fækka einkabílunum. Hilmar á góðri í jakkafötunum frægu á afmælisdeginum sínum, fjörutíu árum eftir að hafa keypt þau. En eins og áður segir fagnaði hann áttræðisafmæli sínum í fjörutíu ára jakkafötum sem hann keypti í París á sínum tíma. „Ég keypti þau um sumar og ég hef nú ekki notað þau mikið síðan, en þetta passaði,“ segir Hilmar og heldur áfram. Bjórinn kostaði sitt „Ég held ég hafi verið 73 kíló frá því ég var svona 25 ára og er það enn þá. Svo kom bjórinn þarna 1989, þá fitnaði ég um þrjú kíló. Ég byrjaði ekkert að vinna í þeim. Líkaminn tók við þessu og lagaði sig sjálfur,“ segir Hilmar léttur. „Ég hef ekki passað mig mjög mikið í gegnum árin en konan mín, hún náttúrulega sér um að ég sé á sæmilegu mataræði og passar upp á að ég borði hollt. En ég held að aðalatriðið sé sem sagt að hætta að borða þegar maður er saddur. Og svo þarf maður náttúrulega að hreyfa sig. Ég held að það sé fyrst og fremst málið. Ég spila badminton tvisvar í viku og karlaleikfimi hjá Gauta Grétarssyni tvisvar í viku. Hann veitir manni mikið aðhald. Ég er búinn að vera í þessu í 30-40 ár.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem rætt er við eiginkonu hans Svanhildi og dóttur, Maríu Sigrúnu fréttakonu á RÚV.
Ísland í dag Heilsa Eldri borgarar Vala Matt Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira