Íslenski boltinn

Víkingar keyptu Helenu af Val

Sindri Sverrisson skrifar
Helena Ósk Hálfdánardóttir er orðin leikmaður Víkings.
Helena Ósk Hálfdánardóttir er orðin leikmaður Víkings. Víkingur

Sóknarmaðurinn Helena Ósk Hálfdánardóttir var í dag kynnt sem nýr leikmaður Víkings og klæðist því nýjum búningi í Bestu deildinni í sumar.

Helena kemur til Víkings frá Val þar sem hún hefur verið síðustu tvær leiktíðir. Hún kom til Vals frá Breiðabliki eftir að hafa misst af allri leiktíðinni 2023, vegna krossbandsslita í hné. 

Helena, sem er 25 ára, er uppalin hjá FH en hefur einnig spilað með Fylki og svo Breiðabliki og Val.

Hún var í byrjunarliði Vals í sjö deildarleikjum á síðustu leiktíð en kom við sögu í 21 deildarleik, og skoraði eitt mark.

Ljóst er að Víkingar sjá fyrir sér að geta nýtt krafta Helenu betur en hún hefur á sínum ferli spilað 197 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 39 mörk. Þá á hún að baki 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði í þeim fjögur mörk.

„Við erum mjög ánægð að fá Helenu í Hamingjuna. Helena er frábær sóknarmaður sem getur spilað allar 3 fremstu stöðurnar á vellinum og með góðan hægri fót. Hún passar vel inní hópinn okkar, leikmaður með reynslu en einnig með hungur í að gera betur,“ segir Einar Guðnason, þjálfari Víkinga, á heimasíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×