Verjum meiri skjátíma með börnunum Eva Pandora Baldursdóttir skrifar 3. febrúar 2026 16:02 Börn í dag alast upp í heimi þar sem netið er ekki aukahlutur heldur órjúfanlegur hluti af daglegu lífi. Þar læra þau, leika sér, mynda vináttu, skapa og móta sjálfsmynd sína. Fyrir þau er stafræni heimurinn ekki aðskilinn frá „raunveruleikanum“ heldur hluti af honum. Netið býður upp á ótal tækifæri til þekkingar, samskipta og sköpunar, en þar leynist líka raunveruleg áhætta sem við megum ekki líta fram hjá. Það er þó mikilvægt að hafa eitt alveg á hreinu. Tæknin sjálf er ekki óvinurinn. Hún er verkfæri. Spurningin er ekki hvort hún sé góð eða slæm, heldur hvernig hún er notuð, hverjir móta umhverfið og hvernig við styðjum börnin okkar í þessum stafræna veruleika sem þau lifa í á hverjum degi. Við sem fullorðin þurfum stundum að viðurkenna að börnin eru oft skrefi á undan okkur tæknilega. Þau tileinka sér nýja miðla, leiki og samskiptaform mjög náttúrulega. Það þýðir þó ekki að við séum valdalaus eða eigum að stíga til hliðar. Þvert á móti. Með því að vera með þeim, sýna raunverulegan áhuga og vera til staðar, eykst öryggi þeirra til muna. Það getur skipt sköpum að spyrja, hlusta og taka þátt. Ég mæli til dæmis heilshugar með því að foreldrar prófi að spila Minecraft eða Roblox með börnunum sínum. Það er ekki bara fróðlegt heldur líka ótrúlega skemmtilegt og opnar samtöl sem annars ættu sér kannski ekki stað. Það er líka pínu skondið, og um leið lærdómsríkt, að rifja upp að margir sem í gamla daga voru skammaðir fyrir að vera of mikið í tölvunni eru í dag fólk sem hefur einmitt lifibrauð sitt af tækni, forritun eða hugbúnaðarsmíði. Það sem eitt sinn var talið argasta tímaeyðsla reyndist að lokum vera dýrmæt færni. Þetta minnir okkur á að við þurfum að vanda okkur þegar við dæmum nýjar venjur og áhugamál barna. Jákvætt og opið viðhorf þýðir þó ekki að við lokum augunum fyrir áhættunni. Börn verða fyrir áreitni, einelti og jafnvel ofbeldi á netinu. Persónuupplýsingum þeirra er safnað kerfisbundið og athygli þeirra nýtt í viðskiptalegum tilgangi. Netöryggi barna snýst því ekki bara um tæknilausnir heldur um réttindi, ábyrgð og vernd. Spurningin er ekki hvort börn eigi að vera á netinu. Þau eru þar nú þegar. Spurningin er hvort við ætlum að vera þar með þeim, taka ábyrgð, sýna leiðsögn og standa vörð um réttindi þeirra. Á þessum nótum er vert að minnast á að í kvöld fer fram opið samtal um netöryggi barna á vegum Foreldraþorpsins kl 19:30 í Virkinu, veislusal Víkings. Ég vona að slík samtöl verði kveikja að meiri og opnari umræðu í samfélaginu um netöryggi barna og ábyrgð okkar allra. Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Pandora Baldursdóttir Símanotkun barna Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar