Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Samúel Karl Ólason skrifar 2. febrúar 2026 15:01 Meðal Epstein-skjalanna voru fjölmargar myndir sem sýndu ungar konur eða táninga. Á myndunum mátti bæði sjá nekt og andlit þeirra. AP/Jon Elswick Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti fyrir mistök fjölda nektarmynda af ungum konum og mögulega táningum. Myndirnar voru úr einkasafni Jeffreys Epstein og hluti af Epstein-skjölunum svokölluðu. Lögin sem skikkuðu ráðuneytið til að birta skjölin fólu í sér að hylma átti yfir nekt á myndum Epsteins og andlit meintra fórnarlamba hans eða aðrar upplýsingar sem hægt væri að nota til að bera kennsl á þau.
Ráðuneytið birti á föstudaginn rúmlega þrjár milljónir blaðsíðna og fjölda mynda og myndbanda en síðan þá hafa blaðamenn fundið tæplega fjörutíu myndir, hið minnsta, sem sýndu bæði nekt og andlit kvenna. Í grein New York Times segir að konurnar á myndunum hafi virst mjög ungar en óljóst sé hvort þær hafi verið táningar. Sumar myndanna virtust hafa verið teknar á einkaeyju Epsteins og aðrar voru úr svefnherbergjum eða á öðrum stöðum Blaðamenn miðilsins létu starfsmenn ráðuneytisins vita af myndunum og voru þær fjarlægðar. Talskona dómsmálaráðuneytisins segir fjölda starfsmanna vinna að ábendingum og öðru sem komið hefur í ljós eftir að skjölin voru birt á föstudaginn. Öll skjöl sem eru fjarlægð í þeirri vinnu verði birt aftur seinna meir, þegar búið sé að afmá eða sverta upplýsingar á þeim. Mörg fórnarlömb Epsteins hafa kvartað yfir því að hægt hafi verið að bera kennsl á þær út frá skjölunum sem birt voru. Litlar líkur á frekari handtökum Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra sen stýrt hefur opinberun Epstein-skjalanna, segir litlar líkur á því að skjölin muni leiða til frekari handtaka eða ákæra. Hræðilegar myndir og óhuggulegir tölvupóstar geri saksóknurum ekki endilega kleift að ákæra fólk. Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra, segir litlar líkur á frekari handtökum eða ákærum í tengslum við Epstein. Þá hefur hann sagt að hann óttist að skjölin muni ekki duga til að svara þorsta almennings vestanhafs í upplýsingar um Epstein, brot hans og samverkamenn.AP/J. Scott Applewhite Epstein-skjölin innihalda öll þau gögn sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í gegnum árin vegna rannsókna sem tengst hafa brotum Epsteins og annarra sem honum tengjast, eins og Ghislane Maxwell, fyrrverandi kærustu hans og aðstoðarkonu til langs tíma. Meðal annars er um að ræða tölvupósta Epsteins og önnur skilaboð, skrár sem fundust í tölvum hans á borð við myndir sem hann hafði sótt á netið og ýmislegt annað. Ráðuneytið hefur setið á þessu gagnasafni um nokkurra ára skeið, bæði í forsetatíð Trumps og Joes Biden. Fjölmiðlar hafa þar að auki lengi kafað í málefni Epsteins, sem svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. Hann var 66 ára gamall og hafði þá verið ákærður fyrir mansal og sakaður um að misnota stúlkur kynferðislega og jafnvel útvega áhrifamiklum vinum sínum stúlkur til að misnota.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Tengdar fréttir Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. 2. febrúar 2026 13:03 Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Joanna Rubinstein, yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð, sagði af sér eftir að í ljós kom að hún hefði heimsótt einkaeyju Jeffreys Epstein, bandaríska kynferðisbrotamannsins. Hún segist hafa vitað af brotum Epstein en ekki umfangi þeirra. 2. febrúar 2026 11:13 „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar. 1. febrúar 2026 18:30 „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær þrjár milljónir nýrra Epstein-skjala. Fjöldi þekktra nafna bregður fyrir, til að mynda er minnst á Bandaríkjaforseta mörg hundruð sinnum en einnig er minnst á Íslendinga. Enn er aðeins um topp ísjakans að ræða að mati sérfræðings í bandarískum stjórnmálum. 31. janúar 2026 13:22 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. 2. febrúar 2026 13:03
Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Joanna Rubinstein, yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð, sagði af sér eftir að í ljós kom að hún hefði heimsótt einkaeyju Jeffreys Epstein, bandaríska kynferðisbrotamannsins. Hún segist hafa vitað af brotum Epstein en ekki umfangi þeirra. 2. febrúar 2026 11:13
„Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar. 1. febrúar 2026 18:30
„Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær þrjár milljónir nýrra Epstein-skjala. Fjöldi þekktra nafna bregður fyrir, til að mynda er minnst á Bandaríkjaforseta mörg hundruð sinnum en einnig er minnst á Íslendinga. Enn er aðeins um topp ísjakans að ræða að mati sérfræðings í bandarískum stjórnmálum. 31. janúar 2026 13:22