Borgarlínan verður kosningamálið í vor Þórir Garðarsson skrifar 1. febrúar 2026 14:32 Kosningarnar í Reykjavík í vor munu að miklu leyti snúast um Borgarlínu. Þar stendur valið milli þess að halda áfram með umdeilt risaverkefni eða staldra við og endurmeta forsendur þess áður en lengra er haldið. Nú er í raun síðasta tækifærið til að hugsa framkvæmdina upp á nýtt áður en höfuðborgarsvæðið verður bundið til áratuga. Borgarlínan er kynnt sem stórt framfaraskref, en þegar rýnt er í forsendur verkefnisins er eðlilegt að spyrja hvort valin leið sé sú skynsamlegasta fyrir borgarbúa. Nýjasta skoðanakönnunin um afstöðu til Borgarlínu sýnir að aðeins um 22% kjósenda Sjálfstæðisflokksins styðja Borgarlínu. Slík niðurstaða kallar á athygli fulltrúa flokksins á höfuðborgarsvæðinu. Í lýðræðissamfélagi á að hlusta þegar kjósendur senda skýr skilaboð. Borgarlínan er hugsuð sem safngripur Borgarlínuhugmyndin byggir á færri og stærri strætisvögnum sem safna farþegum úr mörgum leiðum inn á afkastamiklar stofnbrautir Borgarlínunnar. Slík kerfi geta virkað vel í mjög þéttum stórborgum, en í dreifðri borgarbyggð geta þau þýtt fleiri vagnaskipti, meiri bið í kulda og trekki og minna svigrúm fyrir farþega sem vilja komast beint á áfangastað. Fyrir marga skiptir einfaldleiki meira máli en fræðilegur hraði kerfisins í heild. Að komast alla leið í sama vagni er oft metið mikilvægara en að spara nokkrar mínútur með vagnaskiptum. Þungir vagnar, meiri kostnaður Þá er einnig rétt að horfa á áhrif stærri og þyngri borgarlínuvagna á innviði borgarinnar. Rafknúnir stórvagnar eru mun þyngri en hefðbundnir og meiri þyngd þýðir meira slit á gatnakerfinu. Í vegagerð er vel þekkt að álag eykst hratt með þyngd og ásþunga. Það þýðir ekki aðeins aukið viðhald heldur kallar á að grafa upp og skipta um undirlag borgalínubrautanna. Slíkar framkvæmdir eru kostnaðarsamar og sá kostnaður lendir að lokum á skattgreiðendum. Þyngri byrðar lagðar á almenning Fjármögnun stórra innviðaverkefna er líka hluti af heildarmyndinni. Þegar kostnaður er að verulegu leyti sóttur í hærra lóðaverð á uppbyggingarsvæðum og gjaldtöku eða tafagjöld á almenna umferð er í raun verið að færa byrðar yfir á breiðan hóp skattgreiðenda þar á meðal þá sem nýta kerfið lítið eða ekki. Þar vaknar eðlileg spurning um jafnræði og sanngirni. Sveigjanlegar almenningssamgöngur eru betri Enginn dregur í efa mikilvægi öflugra almenningssamgangna. Spurningin snýst um leiðina að markmiðinu. Sveigjanlegri lausnir, meiri tíðni hefðbundinna vagna, snjallstýring og leiðir sem krefjast færri vagnaskipta geta í mörgum tilvikum skilað raunverulegum ávinningi fyrir farþega án jafn mikilla inngripa í borgarrými og fjárhag. Að lokum má líka velta upp stærri spurningu sem kjósendur eiga rétt á að ræða: Er Borgarlínan fyrst og fremst hagnýt lausn sem þróast út frá þörfum borgarbúa, eða stórt og sýnilegt verkefni sem höfðar til þeirra sem vilja skilja eftir sig varanleg spor í borgarmyndinni? Þegar milljarðar eru bundnir til áratuga er eðlilegt að krefjast þess að hagsmunir skattgreiðenda ráði för, ekki arfleifð eða pólitískur sýnileiki. Í grunninn er þetta spurning um forgangsröðun. Á að leggja megináherslu á stórt og stíft kerfi, eða þróa samgöngur stig af stigi með hliðsjón af raunverulegri notkun og þörfum? Kjósendur eiga skilið að þessi umræða sé tekin af yfirvegun og á heiðarlegum forsendum. Samgöngukerfi borgarinnar á að þjóna fólki fyrst og fremst. Það er sú mælikvarði sem ætti að ráða för. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þórir Garðarsson Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar