Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu Lovísa Arnardóttir skrifar 27. janúar 2026 15:05 Guðrún Aspelund sóttvarnalæknis mun í kjölfar skoðunar óháðra sérfræðinga brýna fyrir hjúkrunarheimilum að meta það í hvert sinn það eigi að bólusetja og hvenær. Vísir/Vilhelm Tveir óháðir sérfræðingar meta að engin leið hafi verið til að fullyrða að andlát fjögurra einstaklinga árið 2023 hafi verið í beinu orsakasamhengi við Covid-19 bólusetningu. Andlát einstaklinganna voru skráð í dánarmeinarskrá vegna bólusetninga við Covid-19. Öll fjögur sem létust voru íbúar hjúkrunarheimila og hafa dánarvottorð þeirra nú verið uppfærð.
Embætti landlæknis fékk óháða sérfræðinga til að fara yfir dánarvottorðin en niðurstaða þeirra var að samband bólusetningar og andláts í hverju tilviki hafi verið talið ólíklegt en allir einstaklingarnir höfðu fengið bæði bólusetningu gegn inflúensu og COVID-19 á sama tíma. Eigi að fresta bólusetningu þegar fólk er veikt Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis. Þar kemur einnig fram að sóttvarnalæknir ætli að brýna það við rekstraraðila hjúkrunarheimila að almennt eigi að fresta bólusetningu hjá einstaklingum með bráð veikindi, hita eða bráða sýkingu og endurmeta þegar ástand viðkomandi er orðið betra. Þetta eigi við um alla aldurshópa en ekki síst þá sem eldri eru. Þegar einstaklingar eru eldri og hrumir segir í brýningu sóttvarnalæknis að vega þurfi og meta í hverju tilviki fyrir sig hvort það eigi að bólusetja, sérstaklega hjá þeim sem eru nálægt lífslokum. Í tilkynningu embættis landlæknis segir að í dánarmeinaskrá hafi ástæða andláts verið skráð bólusetning en engar viðbótarupplýsingar hafi borist embættinu og því hafi vottorðin verið skráð með þessum hætti. Fyrsta skipti sem andlát var skráð vegna bólusetningar Í kjölfarið hafi embætti landlæknis ákveðið að biðja óháða sérfræðinga að skoða skráningu á þessum andlátum vegna þess að þetta var í fyrsta skipti svo langt sem skrár ná hér á landi sem bólusetning var skráð sem dánarorsök auk þess sem andlátin áttu sér stað á tiltölulega stuttu tímabili. Embættið leitaði til óháðra sérfræðinga til að leggja mat á dánarvottorðin. Þetta voru þau Anna Björg Jónsdóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum og yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala, og Ólafur Þór Gunnarsson, sérfræðingur í lyf- og öldrunarlækningum, yfirlæknir endurhæfingarhluta öldrunarlækninga á Landspítala. Bæði eru með áratuga reynslu innan öldrunarþjónustu, bæði á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum. Uppfærði vottorðin Í tilkynningu embættis landlæknis kemur jafnframt fram að eftir að þessi niðurstaða lá fyrir áttu fulltrúar embættis landlæknis fund með lækninum sem gaf út umrædd vottorð. Á fundinum var farið yfir skýrslu óháðu sérfræðinganna og niðurstöður hennar ræddar. Í kjölfarið yfirfór læknirinn dánarvottorðin og uppfærði þau hvað dánarmein varðar án aðkomu embættisins. Í niðurstöðu óháðu sérfræðinganna kemur, samkvæmt tilkynningu landlæknis, einnig fram að allir íbúar hjúkrunarheimilanna hafi talist með mikinn eða mjög mikinn hrumleika og allir íbúar hefðu verið með einn eða fleiri langvinna sjúkdóma og á fjöllyfjameðferð. Eigi að fara fram einstaklingsmiðað mat fyrir bólusetningu Í niðurstöðu óháðu sérfræðinganna var einnig fjallað um að ástæða væri til að hugleiða hvort það hafi verið ástæða til að bólusetja þessa einstaklinga á þessum tíma. Sum þeirra hafi verið með bráð veikindi og öll verið hrum eða mjög hrum. Í niðurstöðunni er bent á að einstaklingsmiðað mat ætti að fara fram á því hvort bólusetning sé viðeigandi hjá íbúum hjúkrunarheimila með hliðsjón af heilsufari þeirra annars vegar og hins vegar samanber ráðleggingar sóttvarnalæknis og landlæknis varðandi bólusetningar eldri og hrumari einstaklinga. Í tilkynningu embættis landlæknis er því bent á að almennt skuli fresta bólusetningu hjá einstaklingum með bráð veikindi, hita eða bráða sýkingu og endurmeta þegar ástand viðkomandi er orðið betra. Þetta á við um alla aldurshópa en ekki síst þá sem eldri eru. „Varðandi eldri og hruma einstaklinga þarf að vega og meta í hverju tilviki hvort eigi að bólusetja, einkum þá sem eru taldir nálægt lífslokum og ef ástand einstaklings fer versnandi þarf að fara fram einstaklingsbundið mat á hvort rétt sé að fresta eða hætta við bólusetningu. Í ljósi ábendinga óháðra sérfræðinga hyggst sóttvarnalæknir brýna þessi tilmæli við hjúkrunarheimili.
Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira