Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Samúel Karl Ólason skrifar 23. janúar 2026 10:07 Elon Musk á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss. AP/Markus Schreiber Elon Musk, auðugasti maður heims, er að snúa sér aftur að stjórnmálum í Bandaríkjunum eftir að hann lappaði upp á samband sitt við Donald Trump, forseta. Auðjöfurinn ætlar sér að opna veski sitt á nýjan leik fyrir þingkosningarnar í nóvember en háttsettir Repúblikanar eru sagðir hafa leitað á náðir Musks og beðið hann um aðstoð.
Hann er þegar búinn að styðja einn frambjóðanda Repúblikanaflokksins um tíu milljónir dala. Wall Street Journal segir að starfsmenn Musks hafi átt nokkra fundi að undanförnu, með frambjóðendum, ráðgjöfum þeirra og öðrum, til undirbúnings kosningabaráttunni og hvernig Musk geti best beitt sér. Heimildarmenn miðilsins segja sérstaka áherslu hafa verið lagða á hvernig hægt væri að aðstoða Repúblikana með skilaboðum á netinu og smáskilaboðum til kjósenda. Markmiðið á að vera að fá kjósendur Trumps til að mæta einnig í kjörklefana í þingkosningunum en slíkt hefur reynst erfitt í gegnum árin. Þá segja þeir að enn sé óljóst hve miklu púðri, og hve miklum peningum, Musk ætli að verja í kosningabaráttuna og er auðjöfurinn sagður vera að íhuga að beita sér gegnum pólitíska aðgerðasjóðinn America PAC. Þann sjóð stofnaði hann fyrir forsetakosningarnar 2024, til að aðstoða Trump og Repúblikana, sem hann gerði með því að verja nærri því þrjú hundruð milljónum dala. Samband Musks og Trumps versnaði töluvert tiltölulega fljótt eftir að Trump tók við embætti í janúar í fyrra. Það sprakk síðan í loft upp með látum síðasta sumar og hét Musk því þá að stofna sinn eigin stjórnmálaflokk. Það gerði hann þó ekki. Háttsettir Repúblikanar hafa að undanförnu leitað á náðir hans. Þeirra á meðal er JD Vance, varaforseti, sem er sagður hafa beðið Musk um aðstoð við að hjálpa Repúblikönum að halda meirihlutum sínum í þingi. Útlitið þykir sérstaklega slæmt fyrir Repúblikana í fulltrúadeildinni, þar sem þeir eru með mjög nauman meirihluta. Trump ræddi vandamál Repúblikana þegar hann ávarpaði þingmenn flokksins fyrr í mánuðinum og lýsti hann þá yfir furðu á því af hverju kjósendur væru ekki ánægðir með störf þeirra. „Ég óska þess að þið gætuð útskýrt fyrir mér hver fjandinn er að gerast í hugum almennings. Því við erum með réttu stefnumálin, ekki þeir. Þeir [Demókratar] eru með hræðileg stefnumál.“ Þá talaði hann einnig um það að hætta við kosningarnar í haust en sagðist ekki vilja segja það. „Ég ætla ekki að segja hættum við kosningarnar, þeir ættu að hætta við kosningarnar. Því þá segja fölsku fjölmiðlarnir: „Hann vill hætta við kosningarnar. Hann er einræðisherra“. Þeir kalla mig alltaf einræðisherra.“
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Elon Musk Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira