Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Smári Jökull Jónsson skrifar 20. janúar 2026 19:32 Ofbeldi gegn lögreglu hefur aukist mikið síðasta áratuginn. Vísir/Ívar Fannar Fjöldi ofbeldisbrota gagnvart lögreglumönnum hefur nær tvöfaldast síðasta áratuginn. Dæmi eru um að glæpamenn hafi átt við bíla lögreglumanna og formaður Landssambands lögreglumanna kallar eftir harðari dómum vegna alvarlegra brota.
Samkvæmt tölum frá ríkislögreglustjóra hefur ofbeldis- og hótunarbrotum gagnvart lögreglumönnum fjölgað umtalsvert síðustu árin. Fjöldi tilkynntra hótana nærri því þrefaldaðist á árunum 2016-2025 og tilkynningum fjölgaði um 67% á milli 2024 og 2025. Þar er aukningin feiknamikil hjá embætti héraðssaksóknara en þrjátíu og tvö af þrjátíu og þremur brotum sem skráð voru hjá embættinu á síðasta ári áttu sér stað á Litla-Hrauni. Vill harðari refsingar Ofbeldisbrotum hefur einnig fjölgað mikið. Árið 2016 var tilkynnt um 67 ofbeldisbrot gagnvart lögreglumönnum en 132 á síðasta ári, nærri tvöfalt fleiri brot. Samtals hefur fjöldi hótana- og ofbeldisbrota meira en tvöfaldast á áratug. Súluritin sýna gríðarlega fjölgun tilkynntra brota um ofbeldi og hótana um ofbeldi gagnvart lögreglumönnum.Vísir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna segir tölurnar ekki segja til um alvarleika brotanna. Refsingar vegna brota þurfi að bíta. „Okkur hefur fundist skortur þar á, okkur hefur ekki fundist verið nógu langir eða strangir dómar fyrir ofbeldi gagnvart lögreglumönnum eða opinberum starfsmönnum,“ sagði Fjölnir í viðtali í kvöldfréttum Sýnar. Fjölnir Sæmundsson er formaður Landssamands lögreglumanna.Vísir/Ívar Fannar Hann kveðst hafa áhyggjur af þróuninni. „Því ég veit þó það standi ekki í þessum tölum að margar af þessum hótunum eru frá skipulögðum glæpasamtökum eða fólki sem er í skipulögðum glæpum. ég hef áhyggjur af þeim hótunum.“ „Hafa komið að einhverjum að eiga við bílana sína“ Ofbeldi gagnvart lögreglu hafi margar birtingarmyndir. „Hótun er ofbeldi, að skemma bílana okkar er ofbeldi, að sitja fyrir utan húsin okkar, að fletta upp bílnúmerunum okkar og leita að okkur. Þetta er allt ofbeldi og hótun.“ Þekkir þú dæmi um að það sé setið fyrir lögreglumönnum? „Við höfum heyrt um það. Við vitum að lögreglumenn hafa komið að einhverjum að eiga við bílana sína í bílageymslum eða fyrir utan húsið sitt.“ Hættulegt að vera lögreglumaður Þegar ofbeldisbrot eru sundurliðuð eftir embættum sést að langflest brotin eru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og þar hefur brotum fjölgað um tæplega 60% frá 2016. Suðurnes koma næst og Norðurland eystra þar á eftir. Fjöldi tilkynntra brota árið 2025 eftir embættum.Vísir Í Vestmannaeyjum er tilkynnt um jafnmörg brot og á öllu Suðurlandi en staðan er öllu skárri annars staðar á landsbyggðinni. Er hættulegt að vera lögreglumaður? Já, auðvitað er það hættulegt. Þú veist aldrei hvað gerist þegar þú mætir í vinnuna þann daginn og fólki getur liðið illa að vera lögreglumenn. En það velur þetta starf og stendur alveg undir því,“ segir Fjölnir að lokum.
Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira