Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Aron Guðmundsson skrifar 17. janúar 2026 22:45 Stefán Teitur skartar hér treyju Hannover Mynd: Hannover Íslenski landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson er spenntur fyrir komandi tímum í Þýskalandi þar sem að hann hefur samið við lið Hannover. Hann sætti sig ekki við bekkjarsetu á Englandi og er spenntur fyrir öðruvísi hlutverki í Þýskalandi sem hann kannast þó einnig vel við. „
Þetta kom upp um miðjan desember en þessi tími hjá Preston upp á síðkastið, þar sem að ég byrjaði allt í einu að spila lítið sem ekki neitt olli því að bæði ég og félagið vorum sammála um að það væri best fyrir mig að finna mér annað félag,“ segir Stefán Teitur í samtali við Vísi. Hvernig var að vera í þessari stöðu að fá lítið að spila og vissirðu þá fljótt að þú vildir komast annað, reyna fyrir þér hjá öðru félagi? „Ég vissi það fljótt á. Ég ætlaði mér ekki að sitja á varamannabekknum hjá Preston og spila ekkert að mestu fimm mínútur. Mér fannst ég vera búinn að gera nóg fyrir Preston á síðasta tímabili til þess að sýna fram á að ég væri of góður til þess. Það var bara best í stöðunni að finna eitthvað annað. Hannover kom inn í myndina þarna í desember og það var eitthvað sem heillaði mig strax. Við keyrðum á það. Ég er hrifinn af því hvernig liðið spilar, hvernig þjálfarinn talaði um verkefnið framundan. Það talaði rosalega mikið til mín og ég finn það bara eftir að ég kom hingað að þeir spila mikinn sóknarbolta, halda mikið í boltann.“ Stefán Teitur Þórðarson fagnar sigurmarki gegn Portsmouth sem leikmaður Preston North EndPNEFC/Ian Robinson Hvernig akkúrat telurðu leikstíl liðsins henta þér? „Þetta líkist að ákveðnu leiti mínu síðasta tímabili hjá Silkeborg í Danmörku, hvernig Hannover spilar. Þeir hafa talað við mig um að ég gæti leyst allar stöður á miðjunni hjá þeim. Þeir vilja hins vegar að ég sé svona box to box leikmaður og skori einhver mörk eins og ég var að gera hjá Silkeborg á sínum tíma, hjá Preston var ég aðallega að spila sem djúpur miðjumaður.“ Til mikils er ætlast af Stefáni í Þýskalandi. „Þeir vilja sjá mig koma inn sem leiðtoga. Þrátt fyrir að ég sé bara tuttugu og sjö ára þá bý ég að góðri reynslu bæði úr landsliðinu sem og þeim félagsliðum sem ég hef spilað með. Það eru bara spennandi tímar framundan.“ Hannover er stórt félag á þýskan mælikvarða og hefur í tvígang orðið þýskur meistari sem og einu sinni orðið þýskur bikarmeistari. Mörg ár hafa hins vegar liðið síðan þá og frá árinu 2019 hefur félagið verið fast í næstefstu deild Þýskalands. „Þetta er risa félag. Það koma hátt upp í fimmtíu þúsund manns að meðaltali á heimaleiki liðsins. Bærinn lifir fyrir félagið og það er eitthvað sem mig langar að upplifa, að spila fyrir þannig félag. Maður finnur það bara strax, í gegnum skilaboðin sem maður fær og á fólkinu sem maður hittir í bænum, að það eru allir sem fylgjast með. Stærð félagsins og ástríðan sem hér ríkir er eitthvað sem dró mig hingað. Fótboltinn í Þýskalandi er líka mjög skemmtilegur eftir því sem maður hefur séð.“ Stefán Teitur í leik með íslenska landsliðinuvísir/Anton Hvernig heldurðu að þýski boltinn muni eiga við þig? „Bara vel. Fyrstu æfingarnar hafa gengið vel, þetta er skemmtilegur fótbolti og ég sé ekki fram á annað en að geta staðið mig mjög vel.“ Stefán Teitur gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Hannover á morgun þegar að liðið heimsækir Kaiserslauten í þýsku B-deildinni og ber þess að geta að leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay og hefst klukkan hálf eitt. Stefán er klár í að spila. „Ég er í flottu formi og ferskur og er klár ef þjálfarinn ákveður að spila mér. Ég er klár í það sem að hann vill að ég geri.“
Þýski boltinn Íslendingar erlendis Fótbolti Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Fótbolti Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Segir upp sem þjálfari tékkneska landsliðsins Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Heldur efsta sæti deildarinnar Öruggur sigur Fram á Skaganum Brasilía tryggði sig í 16-liða úrslit á dramatískan hátt Valenzuela frá Venesúela dæmir hjá Norðmönnum Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Þriðja sinn á fjórum árum sem Valsmenn skipta um þjálfara í miðri á Hermann látinn taka pokann sinn „Þetta er ekki kallað fótbolti heldur peningabolti“ Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Er „tölvuboltinn“ að trufla markverðina á HM? Óvæntur og „ótrúlega mikill heiður“ Maður dagsins á HM: „Gæti ekki hugsað mér mann sem átti þetta meira skilið“ Mikið þarf að gerast til að fá leik á milli Messi og Ronaldo á HM Forseti FIFA búinn að vera í loftinu í 66 klukkutíma á þessu HM Arnór seldur til Grikklands Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Jürgen Klopp segir að þetta sé besta bandaríska landsliðið í sögunni Húðskammaður af forseta landsins og „blurraður“ í beinni Sjá meira