Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. janúar 2026 06:37 Trump var kampakátur með gjöfina. Hvíta húsið Donald Trump Bandaríkjaforseti tók við Nóbels-verðlaunapening Maríu Corinu Machado, stjórnarandstöðuleiðtoga Venesúela, sem hún afhenti forsetanum í Hvíta húsinu í gær og hyggst eiga hann. „
María afhenti mér friðarverðlaunin sín fyrir þau störf sem ég hef unnið. Dásamlegur vottur um gagnkvæma virðingu. Takk María!“ sagði forsetinn á Truth Social í gær. Machado sagðist sjálf hafa ákveðið að gefa Trump verðlaunin fyrir aðgerðir hans í þágu frelsis Venesúela. Trump hefur í langan tíma ásælst friðarverðlaun Nóbels og var síður en svo ánægður þegar Nóbels-verðlaunanefndin ákvað að verðlauna Machado í fyrra, enda hefur hann margstært sig af því að hafa bundið enda á hvorki meira né minna en átta stríð. Machado tileinkaði forsetanum verðlaunin þegar hún fékk þau afhent en það dugði ekki til að hljóta náð fyrir augum Trump, sem hefur sniðgekk hana í kjölfar þess að Nicolás Maduro var komið frá völdum og ákvað þess í stað að koma varaforseta Maduro, Delcy Rodríguez, til valda. Trump sagði þá meðal annars að Machado nyti ekki nægilegs stuðnings heima fyrir, þrátt fyrir að forsetaefni fylkingar hennar hefði unnið Maduro í forsetakosningunum árið 2024. Óvíst er hvort Machado muni hagnast eitthvað á því að gefa Bandaríkjaforseta verðlaunapeninginn. Þá hefur Nóbels-verðlaunanefndin ítrekað að titillinn sjálfur, friðarverðlaunahafi Nóbels, sé ekki framseljanlegur.
Bandaríkin Venesúela Nóbelsverðlaun Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira