Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Kristján Már Unnarsson skrifar 15. janúar 2026 21:20 Núna er gert ráð fyrir að Vestmannaeyjagöngin opnist í Hánni sunnan við Sprönguna. Hringtorg myndi tengja jarðgöngin við gatnakerfi bæjarins. Eyjagöng ehf. Stjórnarformaður félags um Vestmannaeyjagöng vonast til þess að hægt verði að aka í jarðgöngum til Eyja eftir tíu ár. Stefnt er á að rannsóknarboranir hefjist í vor. Félagið hefur boðað til kynningarfundar í Eyjum í kvöld um verkefnið.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá nýtt myndband sem félagið Eyjagöng ehf. hefur látið gera til að menn átti sig á hvar ætlunin er að jarðgöngin opnist á Heimaey. Félagið er stofnað til að undirbúa, fjármagna og reka Vestmannaeyjagöng, með sama hætti og Spölur gerði við Hvalfjarðargöng. Áætlað er að jarðgöng milli lands og Eyja verði átján kílómetra löng og taki land við bæinn Kross í Landeyjum. Talið er að þau þyrftu að ná niður á 220 metra dýpi undir sjávarmáli til að geta verið í föstu bergi. Áætlað að er göngin verði 18 kílómetra löng og nái niður á 220 metra dýpi undir sjávarmáli.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Á Heimaey er gert ráð fyrir að göngin komi undir Klifið og tengist gatnakerfi Vestmannaeyjabæjar rétt sunnan við Friðarhöfn. Áður var miðað við að göngin opnuðust nær Herjólfsdal, við Hástein, þar sem fótboltavöllurinn er, en núna er gert ráð fyrir að göngin opnist í Hánni, á svæði sunnan Spröngunnar. Hún myndi halda sér þannig að menn ættu áfram að geta sprangað í kaðlinum. En er raunhæft að grafa göng milli lands og Eyja? „Flestar skýrslur, og síðustu skýrslur, sýna að þetta er raunhæft. Það er hægt að gera þetta. Það er hægt að gera göng,“ svarar Árni Sigfússon, stjórnarformaður Eyjaganga. Árni Sigfússon, stjórnarformaður Eyjaganga, í viðtali frá Vestmannaeyjum í dag.Sýn/skjáskot Spurningin sé um kostnað. Menn hafi velt upp tölum allt frá 60 milljörðum króna upp í 140 milljarða. Til að nálgast svarið þurfi rannsóknir. „Og það er það sem þetta félag, Eyjagöng, byrjar á. Við ætlum að hefja rannsóknir. Það verða boraðar kjarnaholur hérna í Eyjum og svo uppi í Landeyjum. Og síðan eru rannsóknir og ýmislegt framundan. Þannig að þetta er fyrsta verkefnið sem þarf til að geta fullyrt um hver kostnaður er í kringum þetta verkefni.“ Svona sjá menn fyrir sér að ekið verði inn í göngin frá Heimaey. Sprangan til hægri.Eyjagöng ehf. Árni bendir á að ríkið sé nú þegar að leggja verulegar fjárhæðir í rekstur Herjólfs og Landeyjahafnar og segir forystumenn verkefnins telja að jarðgöng til Eyja séu fjárhagslega skynsamleg. „Já, við teljum að það sé. En við viljum ekki vera með of miklar fullyrðingar þegar rannsóknir eiga eftir að eiga sér stað. En það er alveg ljóst að arðsemi af þessari framkvæmd getur orðið ágæt, þó að kostnaður verði töluvert mikill.“ -En hver er tímaramminn? Hvenær gætu menn ekið í gegn? „Ja, ég er svona að vona að bara á áttræðisafmælinu mínu eftir tíu ár þá aki ég þarna í gegn með góðum hópi,“ svarar Árni Sigfússon brosandi í frétt sem sjá má hér:
Vestmannaeyjar Rangárþing eystra Jarðgöng á Íslandi Herjólfur Samgöngur Vegagerð Vegtollar Landeyjahöfn Tengdar fréttir Stofna félag til að ráðast í rannsóknir í þágu Vestmannaeyjaganga Félagið Eyjagöng ehf. hefur verið stofnað til að leiða jarðrannsóknir milli lands og Heimaeyjar vegna mögulegrar jarðgangagerðar. Forsvarsmaður verkefnisins segist hafa fengið góðar undirtektir frá bæði fyrirtækjum og sveitarfélögum vegna verkefnisins. 25. nóvember 2025 17:57 Þörf á ítarlegri rannsóknum vegna Vestmannaeyjaganga Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag. 29. október 2024 21:21 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Stofna félag til að ráðast í rannsóknir í þágu Vestmannaeyjaganga Félagið Eyjagöng ehf. hefur verið stofnað til að leiða jarðrannsóknir milli lands og Heimaeyjar vegna mögulegrar jarðgangagerðar. Forsvarsmaður verkefnisins segist hafa fengið góðar undirtektir frá bæði fyrirtækjum og sveitarfélögum vegna verkefnisins. 25. nóvember 2025 17:57
Þörf á ítarlegri rannsóknum vegna Vestmannaeyjaganga Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag. 29. október 2024 21:21