Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Lovísa Arnardóttir skrifar 16. janúar 2026 07:32 Dalskóli er einn þeirra skóla sem tilheyra Austurmiðstöð. Vísir/Vilhelm Enn á eftir að ráða í 30,7 stöðugildi í grunnskólum í Reykjavík, 45,8 grunnstöðugildi í leikskólum og 16,9 stöðugildi í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum í Reykjavík. Flest þeirra stöðugilda sem á eftir að ráða í tilheyra Austurmiðstöð í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum.
Hlutfallslega er manneklan þó mest í Austur- og Suðurmiðstöð, í leikskólum, á frístundaheimilum í Austur- og Norðurmiðstöð og í grunnskólum í Austur- og Suðurmiðstöð. Þetta kemur fram í minnisblaði frá skóla- og frístundasviði sem var til umræðu á fundi skóla- og frístundaráðs fyrr í vikunni. Gögnin sem voru til umræðu miða við stöðuna í borginni þann 7. janúar á þessu ári. Fjórar misstórar miðstöðvar Miðstöðvar borgarinnar eru fjórar og sinnir hver miðstöð fjölbreyttri þjónustu í nærliggjandi borgarhlutum. Hver skóli tilheyrir einum borgarhluta og þar af leiðandi einni miðstöð. Flest börn í borginni tilheyra Austurmiðstöð og fæst Suðurmiðstöð. Sem dæmi voru 1.938 börn í leikskólum Austurmiðstöðvar árið 2024 en aðeins 971 í Suðurmiðstöð. Í Norður- og Vesturmiðstöð voru þau um 1.400. Austurmiðstöð (Árbær, Grafarholt, Norðlingaholt, Úlfarsárdalur, Grafarvogur og Kjalarnes) er sú miðstöð sem þjónustar flesta skóla, alls 15 talsins, sem og flesta nemendur. Fæstir nemendur tilheyra Suðurmiðstöð (Breiðholt) þar sem skólarnir eru 5 talsins. Miðað við gögn borgarinnar voru, sem dæmi, árið 2015 4.937 grunnskólanemendur sem tilheyrðu Austurmiðstöð, 2.400 sem tilheyrðu Suðurmiðstöð, 3.861 sem tilheyrðu Norðurmiðstöð og 4.220 sem tilheyrðu Vesturmiðstöð. Í minnisblaði skóla- og frístundasviðs kemur fram að búið sé að ráða í um 98,8 prósent stöðugilda í grunnskólum, 97,3 prósent grunnstöðugilda í leikskólum og um 94,5 prósent stöðugilda í frístundaheimilum/sértækum félagsmiðstöðvum. Staðan svipuð á leikskólum í Suður- og Austurmiðstöð Ef litið er til hverrar miðstöðvar hlutfallslega má sjá að búið er að ráða í 96,4 prósent stöðugilda í leikskólum í Austurmiðstöð, 98 prósent í Norðurmiðstöð, 96,7 prósent í Suðurmiðstöð og 98,3 í Vesturmiðstöð. 18,5 stöðugildi að losna vegna veikinda eða starfsloka Í nánari umfjöllun kemur fram að í leikskólum eigi eftir að ráða í 45,8 stöðugildi á deildum, sérkennslu og stjórnun samanborið við 48,3 stöðugildi þann 19. nóvember síðastliðinn og 55,1 stöðugildi þann 8. janúar 2025. Að auki eigi eftir að ráða í samtals tíu stöðugildi í eldhús og vegna afleysinga vegna undirbúningstíma og skammtímaveikinda samanborið við 14 í síðustu stöðutöku. Samtals eigi því eftir að ráða í 55,8 stöðugildi samanborið við 62 stöðugildi þann 19. nóvember síðastliðinn en þann 8. janúar fyrir ári átti eftir að ráða í 68,4 stöðugildi. Fram kemur í minnisblaðinu að búið sé að ganga frá ráðningu í 7,5 stöðugildi en að það starfsfólk eigi enn eftir að hefja störf. Þá kemur fram að leikskólastjórar áætli að þeir þurfi að ráða í um 18,5 önnur stöðugildi í stað núverandi starfsfólks sem mun fara í leyfi eða hætta störfum á komandi vikum og mánuðum, þann 19. nóvember var þessi tala 37,8. Sé það lagt saman við þau stöðugildi sem á eftir að manna eru það samanlagt 74,3 stöðugildi. Fullmannað í um helmingi leikskóla Þannig er fullmannað í 51 prósent leikskóla borgarinnar, í rúman fimmtung leikskólanna vantar starfsfólk í eitt eða færri stöðugildi, 16 prósent leikskólanna vantar 1 til 2,5 stöðugildi en 8 leikskólar eiga eftir að ráða í 2,5 til 6 stöðugildi. Í minnisblaðinu fylgja gögn sem sýna að mesta manneklan virðist vera í leikskólum sem tilheyra Austurmiðstöð en þar vantar í 20,50 stöðugildi, níu í Norðurmiðstöð og níu í Suðurmiðstöð og 7,25 í Vesturmiðstöð. Vantar í flest stöðugildi í Austurmiðstöð Í grunnskólum borgarinnar á alls eftir að ráða í 30,7 stöðugildi samanborið við 46,9 stöðugildi þann 3. september síðastliðinn og 44,1 stöðugildi þann 8. janúar 2025. Í minnisblaði kemur fram að unnið sé að því að ráða í 5,5 stöðugildi kennara og 18,2 stöðugildi í stuðning. Einhverjar af þessum ráðningum komi til vegna langtímaveikinda. Í gögnum minnisblaðsins kemur fram að manneklan virðist einnig mest í grunnskólum í Austurmiðstöð en þar vantar að ráða í 13,23 stöðugildi. Í Norðurmiðstöð sex stöðugildi, í Suðurmiðstöð sjö stöðugildi og 4,5 í Vesturmiðstöð. Hlutfallslega er búið að ráða, í grunnskólum, í 98,5 prósent stöðugilda í Austurmiðstöð, 99,2 prósent í Norðurmiðstöð, 98,2 prósent í Suðurmiðstöð og 99,1 prósent í Vesturmiðstöð. Í frístundaheimili og sértækar félagsmiðstöðvar á samkvæmt minnisblaðinu eftir að ráða í alls 16,9 stöðugildi, eða 35 einstaklinga, samanborið við 20,4 stöðugildi þann 19. nóvember síðastliðinn og 32,9 stöðugildi 8. janúar 2025. Í gögnum minnisblaðsins kemur fram að aftur er manneklan mest í Austurmiðstöð sé miðað við fjölda stöðugilda. Þar eigi eftir að ráða í 9,4 stöðugildi eða alls tuttugu starfsmenn í frístundaheimili eða sérstakar félagsmiðstöðvar. Til samanburðar á enn eftir að ráða í 3,5 stöðugildi í Norðurmiðstöð, 0,5 í Suðurmiðstöð og þrjú í Vesturmiðstöð. Hlutfallslega er staðan þannig að búið er að ráða í 89,4 prósent stöðugilda í Austurmiðstöð, 93,3 prósent í Norðurmiðstöð og 96,6 prósent í Suðurmiðstöð. Hæst er hlutfallið í Vesturmiðstöð þar sem búið er að ráða í 98,9 prósent stöðugilda. Fimmtíu börn á bið eftir frístund Þann 7. janúar voru 50 börn á biðlista af 4.165 börnum. 4.115 börn hafa fengið samþykkta vistun, þar af eru 3.995 börn í fullri umbeðinni vistun en 120 í hlutavistun. Öll þau börn sem eru á biðlista búa í hverfum sem tilheyra Austurmiðstöð og eru öll nema eitt sem eru í hlutavistun einnig í Austurmiðstöð. Erfiðara að manna í Austurmiðstöð Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, upplýsingafulltrúi á skóla- og frístundasviði, segir í samtali við fréttastofu að mikla manneklu í Austurmiðstöð megi útskýra með annars vegar fjölda starfsstöðva, sem eru töluvert fleiri þar en í öðrum borgarhlutum, og hins vegar sýni reynslan að fjarlægð þessara skóla og frístundaheimila frá háskólunum hafi skipt máli. „Það er stundum erfiðara að manna í efri byggðum því það er meiri fjarlægð frá háskólum,“ segir hún og að leikskóli og frístundaheimili hafi verið mönnuð háskólanemum. „Sumir eru bara í strætó og það er erfiðara en fjöldi starfsstöðva segir mikið í þessu máli,“ segir hún. Hutfallslega sé munurinn því ekki svo mikill. Vandinn ekki leystur á kjörtímabilinu Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bókuðu á fundi ráðsins að mannekla hefði verið viðvarandi í leikskólum borgarinnar allt frá upphafi kjörtímabilsins og nú í lok þess sé ljóst að ekki hafi tekist að leysa vandann. Um fimmtungur leikskóla sé ekki fullmannaður og enn vanti að ráða í ýmis stöðugildi, bæði í eldhúsi og inni á deildum. „Samtals vantar því 74,3 stöðugildi í leikskólum borgarinnar. Sú alvarlega staða mun því enn blasa við að leikskólar þurfi að skerða þjónustu sína næstu vikur og mánuði með þeim afleiðingum að foreldar þurfi að sækja börnin sín fyrr eða vera heima með börnin sín heilu og hálfu dagana. Það er því ljóst að reykvískir foreldrar geta ekki reitt sig á þjónustu leikskóla borgarinnar þrátt fyrir fögur fyrirheit fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar um að öll börn frá 12 mánaða aldri fengju leikskólavist og því ítrekað lofað á kjörtímabilinu að ráðist verði í aðgerðir til að leysa leikskólavandann,“ segir í bókuninni.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Leikskólar Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Frístund barna Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira