Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. janúar 2026 22:46 Guðmundur Ingi Guðbrandsson bætist í hóp þeirra sem gert hafa athugasemdir við orð Ingu Sæland eftir að hún tók við nýju ráðuneyti Vísir/Vilhelm Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, vill meina að Samfylkingin „hljóti að fara að spyrja sig hvort það hafi verið skynsamlegt að koma Flokki fólksins til valda.“ Ummælin lætur hann falla á samfélagsmiðlum í kvöld í framhaldi af Kastljósviðtali við Ingu Sæland í kvöld, en hún tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra á dögunum og hefur þegar sætt nokkurri gagnrýni fyrir ummæli sem hún hefur látið falla um skóla- og menntamál síðan ljóst varð að hún tæki við nýju ráðherraembætti. Guðmundur Ingi bætist þannig í hóp þeirra sem gagnrýnt hafa málflutning Ingu síðan hún tók við nýju ráðherraembætti, en ummæli hennar hafa meðal annars mætt gagnrýni úr ranni kennarastéttarinnar.
Með færslu sinni deilir Guðmundur Ingi einmitt færslu flokkssystur sinnar, Álfhildar Leifsdóttur grunnskólakennara sem leiddi lista VG í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum. „Ég. Á. Ekki. Eitt. Aukatekið. Orð,” eru fyrstu viðbrögð Álfhildar við Kastljósviðtali við Ingu í kvöld. Þar var Inga til svara um það hvernig hún vilji gera úrbætur í skólakerfinu en hún kveðst leggja megináherslu á læsi. Hún segist gera sér fulla grein fyrir því að kerfið verði ekki lagað með skyndilausnum, heldur sé um langhlaup að ræða. „Það eru allar tölur, allar árangursmælingar sem sýna það að stór hópur barnanna okkar er í rauninni að missa af því að geta menntað sig til framtíðar vegna þess að okkur hefur ekki tekist að kenna þeim að lesa á tíu árum,“ sagði Inga meðal annars. Hún geti ekki sagt til um það hvers vegna ummæli hennar hafi vakið hörð viðbrögð. Það sé alltaf eitthvað fólk, bæði í kennarastétt og öðrum, sem vilji standa vörð um kerfið. „Heilu árgangarnir“ eigi ekki framtíð fyrir sér í menntakerfinu Hún viti sjálf ekki fyrir víst hvers vegna byrjendalæsisstefnan svokallaða hafi verið tekin upp á sínum tíma. Hún hafi bara tekið við embætti í fyrradag og ekki hægt að ætlast til þess að hún „viti allt um allt hvaðeina.“ Inga var jafnframt til viðtals um málið í kvöldfréttum Sýnar í dag. „Hins vegar veit ég það að þetta hefur ekki gefist vel. Það eru allir mælar og vísindi, sem mikið er kallað eftir hér, sem sýna það og sanna að kerfið hefur brugðist. Og við erum að uppskera það núna að það eru heilu árgangarnir af ungu fólki sem á litla framtíð fyrir sér í menntakerfinu eins og það hefur útskrifast úr grunnskólunum okkar,“ sagði Inga ennfremur í Kastljósi. Þessi ummæli telur Álfhildur vera dapurleg. „Það er óskaplega dapurt að hlusta á nýjan ráðherra tala svona niður til unga fólksins okkar, segir að heilir árgangar eigi ekki framtíð fyrir sér innan skólakerfisins. Hið rétta er að hérlendis innritast mjög há prósenta ungmenna í framhaldsskóla miðað við samanburðarlönd,“ skrifar Álfhildur í færslunni sem Guðmundur Ingi deilir áfram. „Álfhildur Leifsdóttir takk! Held að Samfylkingin hljóti að fara að spyrja sig hvort það hafi verið skynsamlegt að koma Flokki fólksins til valda…“ skrifar Guðmundur Ingi. Kveikjum neistann finnska leiðin eða ekki? „Ég ætla að kenna þeim að lesa með kennurunum okkar, við ætlum að hjálpa þeim,“ svaraði Inga meðal annars þegar hún var spurð hvernig hún ætli að bregðast við þessu. Meðal annars vilji hún horfa til finnsku leiðarinnar svokölluðu. Þá sagði Inga að verkefnið Kveikjum neistann, sem þegar hefur verið innleitt í Vestmannaeyjum og önnur sveitarfélög eru að skoða, vera einn lið í finnsku leiðinni sem hún vilji líta til. Þessi ummæli Ingu um Kveikjum neistann gerir Álfhildur jafnframt athugasemdir við. „Mætti byrja á að útskýra fyrir ráðherra að Kveikjum neistann er EKKI Finnska leiðin. Kveikjum neistann er þróunarverkefni til 10 ára, það byrjaði árið 2021. Þær tillögur sem hafa komið frá ráðherra síðustu daga eru reyndar almennt þvert á Finnsku leiðina,“ skrifar Álfhildur.
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinstri græn Flokkur fólksins Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira