Auglýst eftir heimili á Facebook Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar 12. janúar 2026 11:03 Týndir kettir, misjafnlega góð ráð um þyngdarstjórnun, fréttir af vinum og fólk að leita að leiguhúsnæði. Þetta er Facebook feedið mitt á venjulegum degi. Ég veit ekki hvað ég get gert varðandi alla týndu kettina en ég staldra hins vegar við allar þessar leiguauglýsingar þó ég eigi ekkert húsnæði til að leigja út. Um daginn var það auglýsing frá 18 ára stúlku með nokkurra mánaða gamalt barn. Og þar á undan auglýsing frá systrum milli tvítugs og þrítugs með nokkur börn og eitt þeirra fatlað. Fjöldinn allur af einstæðum foreldrum að leita eftir íbúð í hverfinu sínu til að þurfa ekki að rífa börnin úr umhverfi sínu og byrja upp á nýtt annars staðar. Öruggt húsnæði er forsenda velferðar Það hefur eitthvað klikkað þegar kornungar mæður og einstæðir foreldrar með fötluð börn þurfa að berskjalda sig á samfélagsmiðli til að reyna að lifa af á grimmum leigumarkaði. Öruggt húsnæði er grundvöllur allrar velferðar. Það veitir fólki stöðugleika, öryggi og rými til að halda utan um líf sitt og takast á við vinnu, nám, og fjölskyldulíf. Án slíks öryggis veikjast allar aðrar stoðir velferðar og ójöfnuður eykst. Það er verkefni yfirvalda að binda svo um hnútana að fólk hafi aðgengi að öruggu húsnæði. Ekki aðeins með því að slökkva eldana þegar komið er í óefni með sértækum úrræðum – heldur með því að skapa skilyrði fyrir öryggi – líka þegar vextir eru háir og lántökuskilyrði erfið. Heilbrigður langtímaleigumarkaður Í dag eru nokkur þúsund manns á biðlista eftir íbúð hjá almennu óhagnaðardrifnu leigufélögunum og því augljóst að fjöldi landsmanna vill búa í öruggu, langtíma leiguhúsnæði. Reykjavíkurborg hefur verið í fararbroddi að tryggja lóðir fyrir þessi leigufélög en betur má ef duga skal. Séreignarstefnan, sem réði hér ríkjum lengi og gerir að mestu leyti enn, gerði leigumarkaðinn að skammtímalausn – eins og Facebook auglýsingarnar bera með sér. Nú þarf að tryggja að óhagnaðardrifin leigufélög sem eru að byggja í þágu samfélagsins fái þær lóðir sem þau þurfa og stofnframlög svo að fólk komist af biðlistunum og inn í íbúðir. Örugg langtímaleiga sem stýrist ekki jafn mikið af verðbólgu og vöxtum verður að vera raunverulegur valkostur fyrir fólk til framtíðar. Uppbygging sem fólk hefur efni á Þá er mikilvægt að húsnæði sem er byggt til sölu á almennum markaði sé húsnæði sem fólk hefur efni á, vill og þarf. Núverandi ástand kemur verst niður á ungu og tekjulægrafólki og því nauðsynlegt að leggja áherslu á uppbyggingu hagkvæms húsnæðis. Þar þarf Reykjavíkurborg að sýna áræðni og forgangsraða skýrar í skipulagsmálum og eigin stjórnsýslu, svo uppbygging hagkvæms húsnæðis gangi hraðar og markvissar fyrir sig. Húsnæðisöryggi á nefnilega ekki að ráðast af því hvort fólk er með rétta baklandið, með réttar tekjur eða rétt lánshæfi. Það á að vera hluti af grunninnviðum samfélagsins sem tryggt er að allir njóti. Að eiga öruggt heimili Þegar ungar mæður, einstæðir foreldrar og fjölskyldur með fötluð börn neyðast til að leita að heimili á Facebook, þá er það ekki einstaklingsbundinn vandi heldur kerfisbundinn brestur sem kallar á ábyrgð og pólitískan vilja til að gera betur. Þetta er ekki of stór krafa. Þetta er lágmark og verkefni sem sveitarfélög og ríki verða að axla, af festu og ábyrgð, svo fólk þurfi ekki lengur að senda út neyðarkall á samfélagsmiðlum heldur geti búið sér öruggt heimili í samfélagi sem stendur með því. Höfundur gefur kost á sér í 2. sæti í forvali Samfylkingarinnar til borgarstjórnarkosninga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar