Stendur fastur fyrir og fordæmir Trump Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. janúar 2026 12:13 Khamenei ávarpaði þjóðina í morgun. Getty/Anadolu/IRIB Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir stjórnvöld í landinu ekki munu gefa eftir þrátt fyrir mikil mótmæli síðustu vikur. Hann segir mótmælendur skemmdarverkamenn sem séu að reyna Donald Trump Bandaríkjaforseta til geðs. „
Það er fólk hvers aðgerðir snúast aðeins um eyðileggingu,“ sagði Khamenei í ræðu sem sjónvarpað var í morgun. Hann fordæmdi orð Trump, sem sagði í síðustu viku að Bandaríkin myndu koma mótmælendum til aðstoðar ef þeir yrðu beittir ofbeldi af hálfu stjórnvalda. „Hann vill taka afstöðu með uppreisnarseggjum og skaðlegum einstaklingum,“ sagði Khamenei um Trump. „Ef hann getur það, þá ætti hann að einbeita sér að því að stjórna sínu eigin landi.“ Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að minnsta kosti 28 hafa látist í mótmælunum, þar á meðal börn. Önnur samtök segja yfir 40 látna. Þegar Trump var spurður að því hvað hann ætli að gera vegna þeirra sem þegar hefðu látist í mótmælunum sagðist hann telja að flestir hefðu orðið undir í troðningi. „Ég veit ekki hvort ég geti gert neinn ábyrgan fyrir því,“ sagði hann. Khamenei tók djúpar í árina í ávarpi sínu en Masoud Pezeshkian, forseti Íran, sem hefur kallað eftir umburðarlyndi og samtali. Khamenei sagði hendur Trump ataðar blóði Írana sem féllu í átökum við Ísrael í júní í fyrra og sagði Íran ekki myndu sætta sig við utanaðkomandi afskipti. Þá hvatti hann unga fólkið til að standa vörð um trú sína og pólitíska hugsjón og vera reiðubúið. Sameinuð þjóð myndi sigra alla óvini.
Íran Bandaríkin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira