Ekki fengið kvartanir um Grok-myndir af íslenskum konum Kjartan Kjartansson skrifar 8. janúar 2026 16:30 Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, (t.h.) telur myndbirtingar Grok skýrt dæmi um misnotkun gervigreindar. Spjallmennið er í eigu Elons Musk, ríkasta manns í heimi (t.v.). Vísir Persónuvernd hafa ekki borist tilkynningar um að íslenskar konur eða börn hafi orðið fyrir barðinu á kynferðislegum myndum spjallmennis samfélagsmiðilsins X. Forstjóri stofnunarinnar segir myndirnar skýrt dæmi um misnotkun gervigreindar. Yfirvöld í nokkrum löndum skoða nú fjöldaframleiðslu Grok, gervigreindarspjallmennis X, á kynferðislegum myndum af konum gegn vilja þeirra og jafnvel börnum allt niður í ellefu ára gömul. Samfélagsmiðillinn, sem er í eigu Elons Musk, hefur ekki tjáð sig um framferði spjallmennisins og ekki gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að hann verði við beiðnum notenda um að framleiðla slíkar myndir. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að engar tilkynningar né kvartanir séu til meðferðar hjá stofnuninni vegna Grok eins og er. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir hún eftirlit með X almennt heyra undir systurstofnun Persónuverndar á Írlandi en Persónuvernd fylgist vel með málinu. Veistu meira? Hefur þú séð notendur X og Grok eiga við myndir af íslensku fólki? Sendu okkur fréttaskot. Skýrt dæmi um brot á grunnréttindum fólks Persónuverndarlög segir Helga að nái yfir meðferð persónuupplýsinga í gervigreindarforritum. Það að líkja eftir fólki með notkun gervigreindar geti falið í sér brot gegn persónuverndarreglum. „En svo gætu líka aðrar reglur komið til skoðunar í þessu samhengi, til dæmis ærumeiðingar eða stafrænt kynferðisofbeldi,“ segir í svari forstjórans. Gervigreind geti verið gagnlegt tól þegar hún sé notuð rétt. Auðvelt sé þó að misnota hana þannig að það brjóti gegn grundvallarréttindum annarra, meðal annars til persónuverndar og friðhelgi einkalífs. „Hér má segja að sé skýrt dæmi um slíka notkun,“ segir Helga um myndvinnslu Grok. „Ólöglegt“ og „viðbjóðslegt“ Eftirlitsstofnanir í Frakklandi, Belgíu, Bretlandi, Írlandi og víðar í Evrópu skoða nú kynferðislegar falsanir Grok, að sögn dagblaðsins Politico. Thomas Regnier, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í málefnum stafrænnar þjónustu, segir framferði X og Grok „ólöglegt“ og „viðbjóðslegt“. Á meðal þess sem notendur X hafa látið Grok gera er að breyta myndum af konum og stúlkum undir lögaldri þannig að þær sjáist á undifötum einum saman. Einnig hefur spjallmennið orðið við beiðnum um að stækka brjóst kvenna á raunverulegum myndum af þeim, þar á meðal sænsks ráðherra. Blaðamenn Vísis sannreyndu sjálfir í morgun að Grok hafði orðið við beiðni notanda um að breyta mynd af líki konu sem útsendari bandarískrar innflytjendastofnunar skaut til bana í Minneapolis í gær þannig að hún sæist látin í hnipri á stýri bíls síns í bikíníi einum fata. Einu opinberu viðbrögð Musk og X við framferði spjallmennis þeirra virðist hafa verið að hvetja notendur til þess að beita því ekki á þennan hátt en á sama tíma að varpa ábyrgðinni af því yfir á notendurnar sjálfa þrátt fyrir að myndirnar birtist í nafni Grok á samfélagsmiðlinum. X (Twitter) Persónuvernd Kynferðisofbeldi Stjórnsýsla Gervigreind Elon Musk Samfélagsmiðlar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir Aldursviðeigandi kynfræðsla þurfi að hefjast í leikskóla „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Sjá meira
Yfirvöld í nokkrum löndum skoða nú fjöldaframleiðslu Grok, gervigreindarspjallmennis X, á kynferðislegum myndum af konum gegn vilja þeirra og jafnvel börnum allt niður í ellefu ára gömul. Samfélagsmiðillinn, sem er í eigu Elons Musk, hefur ekki tjáð sig um framferði spjallmennisins og ekki gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að hann verði við beiðnum notenda um að framleiðla slíkar myndir. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að engar tilkynningar né kvartanir séu til meðferðar hjá stofnuninni vegna Grok eins og er. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir hún eftirlit með X almennt heyra undir systurstofnun Persónuverndar á Írlandi en Persónuvernd fylgist vel með málinu. Veistu meira? Hefur þú séð notendur X og Grok eiga við myndir af íslensku fólki? Sendu okkur fréttaskot. Skýrt dæmi um brot á grunnréttindum fólks Persónuverndarlög segir Helga að nái yfir meðferð persónuupplýsinga í gervigreindarforritum. Það að líkja eftir fólki með notkun gervigreindar geti falið í sér brot gegn persónuverndarreglum. „En svo gætu líka aðrar reglur komið til skoðunar í þessu samhengi, til dæmis ærumeiðingar eða stafrænt kynferðisofbeldi,“ segir í svari forstjórans. Gervigreind geti verið gagnlegt tól þegar hún sé notuð rétt. Auðvelt sé þó að misnota hana þannig að það brjóti gegn grundvallarréttindum annarra, meðal annars til persónuverndar og friðhelgi einkalífs. „Hér má segja að sé skýrt dæmi um slíka notkun,“ segir Helga um myndvinnslu Grok. „Ólöglegt“ og „viðbjóðslegt“ Eftirlitsstofnanir í Frakklandi, Belgíu, Bretlandi, Írlandi og víðar í Evrópu skoða nú kynferðislegar falsanir Grok, að sögn dagblaðsins Politico. Thomas Regnier, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í málefnum stafrænnar þjónustu, segir framferði X og Grok „ólöglegt“ og „viðbjóðslegt“. Á meðal þess sem notendur X hafa látið Grok gera er að breyta myndum af konum og stúlkum undir lögaldri þannig að þær sjáist á undifötum einum saman. Einnig hefur spjallmennið orðið við beiðnum um að stækka brjóst kvenna á raunverulegum myndum af þeim, þar á meðal sænsks ráðherra. Blaðamenn Vísis sannreyndu sjálfir í morgun að Grok hafði orðið við beiðni notanda um að breyta mynd af líki konu sem útsendari bandarískrar innflytjendastofnunar skaut til bana í Minneapolis í gær þannig að hún sæist látin í hnipri á stýri bíls síns í bikíníi einum fata. Einu opinberu viðbrögð Musk og X við framferði spjallmennis þeirra virðist hafa verið að hvetja notendur til þess að beita því ekki á þennan hátt en á sama tíma að varpa ábyrgðinni af því yfir á notendurnar sjálfa þrátt fyrir að myndirnar birtist í nafni Grok á samfélagsmiðlinum.
Veistu meira? Hefur þú séð notendur X og Grok eiga við myndir af íslensku fólki? Sendu okkur fréttaskot.
X (Twitter) Persónuvernd Kynferðisofbeldi Stjórnsýsla Gervigreind Elon Musk Samfélagsmiðlar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir Aldursviðeigandi kynfræðsla þurfi að hefjast í leikskóla „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Sjá meira