Kallar Sóla klónabarnið sitt Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 6. janúar 2026 20:02 Sóli Hólm fór á kostum í hlutverki Ingu Sæland áramótaskaupinu. Hún segist vilja fá hann í afleysingar fyrir sig annað slagið. Vísir Almennt virðist ríkja mikil ánægja með áramótaskaupið og eru ráðherrar engin undantekning á því. Inga Sæland formaður Flokks fólksins er hæstánægð með frammistöðu Sóla Hólm sem lék hana og veltir fyrir sér hvort hún geti fengið hann í afleysingarstörf fyrir sig.
Áramótaskaupið 2025 vakti víða mikla lukku en þar kenndi ýmissa grasa. Margir netverjar lýstu aðdáun sinni á Sóla Hólm, sem lék Ingu Sæland, ráðherra og formann Flokks fólksins. Inga sjálf er hæstánægð með túlkun hans á sér og segir hægt að kalla hann Sóla Sæland. „Mér fannst áramótaskaupið bara frábært og Sóli er bara my clone baby eins og ég hef sagt. Nú er mikið talað um að ég sé með þessa þrjá ráðherrahatta. Ég get ekki betur séð en að nú hringi ég í hann Sóla vin minn og athugi hvort hann geti ekki bara leyst mig af svona af og til. Ég elska Sóla,“ segir Inga. Þurfum að geta tekið gríni Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona túlkaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hún er ánægð með skaupið í ár. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir stjórnmálamenn þurfa að geta tekið gríni. Hér er hún á góðri stundu í Kryddsíldinni með Ingu Sæland og Kristrúnu Frostadóttur. Vísir/Anton Brink „Mér fannst það frábært. Mér finnst oft þegar verið er að leika mig í áramótaskaupinu að frummyndin mætti taka sér þessar konur sem eru að leika mig sér til fyrirmyndar. Mér finnst þetta bara skemmtilegt. Ef við getum ekki tekið einhverju gríni þá þurfum við að snúa okkur að einhverju öðru en pólitík,“ segir Þorgerður. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er feginn að hafa ekki komið fyrir í áramótaskaupinu í ár. Vísir Daði Már Kristófersson kom ekki við sögu í skaupinu í ár og er feginn. „Mér fannst skaupið alveg bráðgott og var sérstaklega ánægður með að ég kom hvergi fyrir í því,“ segir hann og hlær.
Áramótaskaupið Flokkur fólksins Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Fleiri fréttir Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið