Segir þörf á samtali um „meintan“ yfirráðarétt Dana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. janúar 2026 07:43 Miller dregur yfirráðarétt Dana yfir Grænlandi í efa. Getty Stephen Miller, einn nánasti stuðningsmaður Donald Trump Bandaríkjaforseta og hugmyndasmiður Bandaríkjastjórnar, segir að stóra spurningin sem blasi við varðandi Grænland sé sú hvaða „meinta“ yfirráðarétt Danmörk hafi yfir landinu.
Miller var til viðtals á CNN um afstöðu Bandaríkjastjórnar til Grænlands, þar sem hann sagði alveg ljóst að það væri stefna Bandaríkjanna að Grænland ætti að tilheyra þeim. Fréttamaðurinn Jake Tapper spurði ítrekað hvort Bandaríkjastjórn myndi mögulega beita hervaldi til að ná yfirráðum á Grænlandi en Miller gaf lítið fyrir það og virtist gefa í skyn að það væri algjörlega ónauðsynlegt þar sem íbúar væru aðeins um 30 þúsund talsins. View this post on Instagram A post shared by CNN (@cnn) Samtal þyrfti hins vegar að eiga sér stað, þá ekki síst um það á hvaða grundvelli Danmörk byggði yfirráð sín yfir Grænlandi. Bandaríkin væru „aflið“ í Atlantshafsbandalaginu og þyrftu Grænland til að tryggja öryggi á Norðurslóðum. Tilefni spurninga Tapper eru aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og ekki síður samfélagsmiðlafærsla eiginkonu Miller, sem birti mynd af Grænlandi undir bandaríska fánanum með orðunum „bráðum“. Bæði Grænlendingar og Danir hafa brugðist ókvæða við orðræðunni vestanhafs. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, gekk svo langt í gær að segja að mögulegar aðgerðir Bandaríkjanna gagnvart Grænlandi myndu jafngilda endalokum Nató.
Danmörk Grænland Bandaríkin NATO Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira