„Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. desember 2025 06:47 Al Ahmed er talinn hafa bjargað mörgum mannslífum þegar honum tókst að hafa byssuna af öðrum árásarmanninum á Bondi strönd. Skjáskot „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum og stoppa hann í því að myrða fólk og taka saklaus líf,“ segir Ahmed al Ahmed, maðurinn sem hljóp að öðrum árásarmannanna á Bondi strönd í desember og tók af honum byssuna. „Ég veit að ég bjargaði mörgum lífum en ég finn til með þeim sem létust.“
Al Ahmed vakti athygli út um allan heim með hetjudáð sinni en menn eru á einu máli um að hann hafi bjargað fjölda mannslífa, þar sem feðgarnir Naveed og Sajid Akram skutu á fólk af handahófi á ströndinni í Nýju Suður Wales í Ástralíu. Þar hafði fólk safnast saman til að fagna ljósahátíð gyðinga. Sajid, 50 ára, var skotinn til bana af lögreglu en Naveed handtekinn. Hann hefur verið ákærður fyrir að myrða fimmtán og reyna að myrða fjörutíu í viðbót. „Ég stökk í bakið á honum og lamdi hann,“ sagði al Ahmed í viðtali við CBS sem verður birt í dag. „Ég hélt honum með hægri hendinni og sagði orð, þú veist, til að vara hann við. Slepptu byssunni þinni, hættu að gera það sem þú ert að gera, og þetta gerðist allt mjög hratt.“ Hann segir eitthvað innra með sér hafa stjórnað því að hann réðist á byssumanninn. „Ég vildi ekki sjá fólk drepið fyrir framan mig, ég vildi ekki heyra í byssunni hans, ég vildi ekki sjá fólk öskra og biðja um hjálp. Og þetta var sálin mín að segja mér að gera þetta.“
Ástralía Hryðjuverkaárás á Bondi-strönd í Sydney Skotvopn Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira