Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. desember 2025 06:47 Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra stóð í ströngu við að tala fyrir breytingum á veiðigjaldi í vor og í sumar. Vísir/Vilhelm Atvinnuvegaráðuneytið hefur á þessu ári keypt ráðgjöf og þjónustu af samskipta- og almannatengslafyrirtækinu Athygli ehf. fyrir tæpar 3,5 milljónir króna, meðal annars í tengslum við breytingar á lögum um veiðigjald. Allt árið í fyrra greiddi sama ráðuneyti rúmar hundrað þúsund krónur fyrir þjónustu almannatengla, þá af fyrirtækinu Góðum samskiptum ehf.
Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Vísis þar sem óskað var eftir upplýsingum um kostnað ráðuneytisins vegna kaupa á þjónustu frá samskipta- og almannatengslafyrirtækjum í ár og á síðasta ári. Aðkeypt samskiptaráðgjöf vegna frumvarps og afleysinga upplýsingafulltrúa Samkvæmt svarinu hefur ráðuneytið aðeins keypt þjónustu af þessum toga hjá Athygli ehf. á þessu ári, það er fyrir 1.528.05 krónur á fyrsta ársfjórðungi og 1.936.012 krónur á öðrum ársfjórðungi 2025. Líkt og áður segir keypti ráðuneytið þjónustu af Góðum samskiptum ehf. í fyrra, en um er að ræða einn reikning fyrir tvær klukkustundir af ráðgjöf sem hljóðar upp á 110.856 krónur. Tímaskýrslur fylgja reikningum fyrirtækisins Athygli til ráðuneytisins sem fréttastofa hefur undir höndum. Þar má sjá að keypt þjónusta hefur meðal annars falist í samskiptaráðgjöf, hagaðilagreiningu, fundum með ráðherra og ráðuneytisfólki og undirbúningi, æfingu fyrir blaðamannafundi og vinnu við ályktanir og upplýsingaefni. Fjölmiðlastrategía, fréttayfirlit og gagnaöflun í tengslum við umræðu um frumvarp kemst einnig á blað í tímaskýrslum, sem og undirbúningur fyrir viðtöl og kynningarfundi, yfirlestur og textavinnsla fyrir greinaskrif og efnisvinnsla vegna þingmála, svo fátt eitt sé nefnt. Athygli vekur einnig „yfirlestur á grein og lagfæringar, tillaga að kvóti í ráðherra. Uppkast að grein fyrir ávarp ráðherra,“ sem kemur fyrir í tímaskýrslu frá því um miðjan maí á þessu ári. Nokkur hluti þeirra tíma sem rukkað er fyrir er einnig vegna starfa sem jafnan væru í verkahring upplýsingafulltrúa ráðuneytisins, sem er í samræmi við það sem fram kemur í svarinu við fyrirspurn fréttastofu. „Ráðuneytið hefur leitað ráðgjafar almannatengslafyrirtækja í einstökum málum og þá einkum varðandi birtingu upplýsinga og miðlunar efnis til almennings. Á árinu 2025 var leitað til fyrirtækisins Athygli ehf. m.a. í tengslum við breytingar á lögum um veiðigjald. Þá var einnig keypt afmörkuð þjónustu af fyrirtækinu í fjarveru upplýsingafulltrúa en aðkeypt þjónusta vegna þess laut einkum að yfirlestri og textavinnslu vegna birtingu frétta á vef auk annarra tilfallandi verkefna,“ segir meðal annars í svari atvinnuvegaráðuneytisins, þar sem einnig var spurt um eðli þjónustunnar og fyrir hvaða verkefni þjónustan var keypt. Umdeilt frumvarp sem náði fram að ganga Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um veiðigjald kom til kasta Alþingis í vor og mætti töluverðri mótstöðu, meðal annars af hálfu stjórnarandstöðunnar og hagaðila í sjávarútvegi. Drjúgur meirihluti þjóðarinnar kvaðst hins vegar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu samkvæmt skoðanakönnunum sem gerðar voru á meðan málið var til meðferðar hjá Alþingi. Málið var þannig fyrirferðamikið í opinberri umræðu á árinu sem nú er senn á enda, og ljóst að ráðherra málaflokksins og ráðuneyti hennar naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna málsins. Eftir lengstu umræðu í sögu þingsins var frumvarpið samþykkt í sumar og tóku lögin gildi í byrjun nóvember. Sjá einnig: Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt Stjórnarmeirihlutinn lagði mikla áherslu á að um leiðréttingu á veiðigjöldum væri að ræða, en ekki hækkun gjaldanna. Með samþykkt laganna voru gerðar breytingar á viðmiðum við útreikning aflaverðmætis sem hefur í för með sér áhrif til hækkunar veiðigjalds í mörgum tilfellum.
Breytingar á veiðigjöldum Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Sjávarútvegur Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira