Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2025 08:51 Stig Engström var talsvert í fjölmiðlum eftir morðið á Olof Palme. Hann sagðist hafa verið einn sá fyrsti á vettvang og að hann gæti aðstoðað lögreglu við rannsóknina. Skjáskot/EPA Embætti ríkissaksóknara í Svíþjóð hyggst ekki taka upp rannsóknina á morðinu á Olof Palme að nýju. Á sama tíma segir ríkissaksóknari að rannsókninni hafi verið ábótavant og að ekki hafi verið rétt árið 2020 að benda á Stig Engström, hinn svokallaða Skandia-mann, sem morðingja forsætisráðherrans fyrrverandi.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Lennart Guné, ríkissaksóknara Svíþjóðar, í morgun. „Að öllu saman teknu er það mín niðurstaða að fyrirliggjandi sönnunargögn séu ekki næg til að benda á [Engström],“ segir Guné. Saksóknarar í teymi sem hafði rannsakað morðið á Palme héldu fréttamannafund sumarið 2020 þar sem þeir lögðu fram gögn og nafngreindu þann mann sem þeir töldu víst að hafi myrt Palme árið 1986. Þeir sögðu það hafa verið Stig Engström sem hefur gengið undir nafninu Skandia-maðurinn í fjölmiðlum. Svipti sig lífi árið 2000 Engström svipti sig árið 2000 og sagði saksóknarinn Krister Petersson á fréttamannafundinum 2020 að því yrði ekki lögð fram ákæra í málinu og að rannsókninni yrði því hætt þar sem ekki yrði komist lengra. Palme var myrtur á horni Sveavägen og Tunnelgatan í miðborg Stokkhólms að kvöldi 28. febrúar 1986 og er morðrannsóknin sú umfangsmesta í sögu Svíþjóðar. Alls hafa 134 manns viðurkennt að hafa myrt forsætisráðherrann og þar af 29 manns beint við lögreglu. Palme hafði gegnt embætti forsætisráðherra Svíþjóðar 1969 til 1976 og aftur frá 1982 og til dauðadags. Rökstuðningi breytt Í yfirlýsingu Guné í morgun kemur fram að rannsóknin verði ekki tekin upp að nýju en að rökstuðningi fyrir ákvörðuninni yrði breytt. Ekki séu næg gögn til að sanna hver hafi myrt Palme og frekari rannsókn sé á þessu stigi ekki talin geta breytt stöðu sönnunargagna til að það skipti sköpum. Í september síðastliðnum kom fram krafa um að rannsóknin yrði tekin upp að nýju með vísun í að ný lífsýnarannsókn á frakka Palme sem hann klæddist umrætt kvöld gæti leitt til þess að ný sönnunargögn gætu komið fram í dagsljósið. Það sé hins vegar niðurstaða ríkissaksóknara nú að svo sé ekki og að ekki sé tilefni til að taka rannsóknina upp að nýju. Hafði verið hluti af rannsókninni Skandia-maðurinn svokallaði hafði verið hluti af rannsókninni frá deginum eftir morðið þegar hann hringdi í lögreglu og sagðist vera vitni í málinu. Hann kom líka oft fram í fjölmiðlum eftir morðið á Palme og var þá duglegur að gagnrýna lögregluna. Hann starfaði á auglýsingadeild í Skandia-byggingunni í miðborg Stokkhólms á þeim tíma sem morðið átti sér stað. Hann stimplaði sig út úr vinnunni klukkan 23:19 umrætt kvöld og tveimur mínútum síðar var Palme og skotinn til bana. Saksóknarinn Petersson sagði á fréttamannafundinum 2020 að vitnisburður Engström og lýsingar hans á framvindunni hafi ekki passað við frásagnir allra annarra sem hafi verið á vettvangi morðsins. Hann hafi sömuleiðis haft aðgang að vopni sem gæti hafa verið notað, að hann hafi verið virkur í hópnum sem hötuðust við Palme, hafi átt í fjárhagsvandræðum og glímt við áfengisfíkn. „Við teljum að við höfum komist eins langt og hægt er að fara fram á. Við komumst ekki hjá því að líta á einn mann sem árásarmanninn. Sá maður er Stig Engström,“ sagði saksóknarinn Petersson á fundinum þá.
Morðið á Olof Palme Svíþjóð Erlend sakamál Mest lesið Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent „Ég get ekki orða bundist“ Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Fleiri fréttir Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Sjá meira