Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Agnar Már Másson skrifar 17. desember 2025 10:47 Ónefndur fulltrúi ríkisstjórnarinnar fann sig knúinn til að hafa samband við þáttarstjórnanda á Bylgjunni til að leiðrétta ummæli viðmælanda í beinni útsendingu. Visir/Anton Brink Bítinu á Bylgjunni bárust skilaboð frá fulltrúa stjórnarflokkanna sem vildi leiðrétta ummæli viðmælanda. Viðmælandinn hafði velt því fyrir sér hvort það væru samantekin ráð af hálfu formanna stjórnarflokkanna að hrósa hver öðrum í Silfrinu á mánudag. Fulltrúi ríkisstjórnarinnar þvertók fyrir það.
Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Miðflokksins, og Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, voru gestir í Bítinu á Bylgjunni í dag og ræddu þar aðallega stjórnmálin. Auk þess voru þau sammála um að Selfoss væri jólabær ársins og hefði betur í baráttu við Reykjavík í þeim efnum. Þegar talið barst að þætti Silfursins á Rúv frá því á mánudag kvaðst Páll vera viss um að það hafi verið samantekin ráð hjá formönnum stjórnarflokkanna að hrósa hver öðrum og tala um mikla samstöðu, sem hann taldi geta orðið ótrúverðugt. Vigdís tók undir þetta og sagði hrósin farin að virka eins og „væmin tugga“. Rúmum tveimur mínútum síðar barst þættinum skeyti í miðri útsendingu. „Ég get sagt að þetta komi alveg beint frá ríkisstjórninni,“ sagði Heimir Karlsson þáttarstjórnandi og las svo upp úr skilaboðunum. „Það eru engin samantekin ráð í hrósi,“ hafði Heimir eftir skilaboðum ríkisstjórnarinnar. Hann kunni þó ekki við að ljóstra upp frá hvaða ráðherra þessi skilaboð hefðu borist. Heyra má hljóðbrotið á tímanum 18.45 í spilaranum hér að neðan. Vigdís bætti við að auðvitað væri því alltaf neitað. Páll sagði að það væri örugglega rétt að þetta væru ekki samantekin ráð, heldur væri þetta greinilega línan sem flokksformennirnir hefðu sett. „Og ég sé út af fyrir sig ekkert athugavert við það.“ Borgin krufin Fleira var þó til umræðu í þættinum en dagskrá Ríkisútvarpsins. Sveitarstjórnarmálin voru einnig rædd, ekki síst fréttir gærdagsins um að Dóra Björt Guðjónsdóttir hefði tilkynnt á blaðamannafundi í gær að hún gengi til liðs við Samfylkinguna. Vigdís sagði það ekki koma á óvart enda væri stutt í sveitarstjórnakosningar. „Þetta var nú allt of mikil skrautsýning, þessi blaðamannafundur, fyrir það eitt að kona í borgarstjórn Reykjavíkur er að skipta um flokk,“ sagði Vigdís. Hún sagðist telja að Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri héldi að með komu Dóru Bjartar gæti Samfylkingin nálgast kjörfylgið í Reykjavík. Hún benti þó á að fylgið væri líklegast frekar vegna Kristrúnar Frostadóttur, flokksformanns og forsætisráðherra, frekar en sitjandi borgarstjóra, sem njóti ekki mikilla vinsælda. Viðreisn og vinstrið í kreppu Páll vitnaði í Eirík Bergmann stjórnmálafræðing sem sagði í kvöldfréttum Sýnar í gær að Vinstri græn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn væru orðnir að „tómum skeljum“ án fylgis. Vigdís tók undir. VG og Píratar duttu út af þingi í síðustu kosningum og Sósíalistar hafa ekki náð manni inn á þing frá stofnun flokksins. Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, tilkynnti á dögunum að hún myndi ekki sækjast eftir endurkjöri sem formaður á næsta landsfundi en hún var kjörin slíkur á síðasta fundi. Sanna Magdalena Mörtudóttir, fulltrúi Sósíalistaflokksins í borgarstjórn, tilkynnti í síðustu viku um nýtt framboð sem hún kallað Vor til vinstri í kjölfar þess að illkvitnar deilur klufu Sósíalistaflokkinn. Vigdís sagðist ekki sjá þessa hreyfingu fyrir sér og teldi hana smíðaða á bak við tjöldin. Vigdís vildi enn fremur meina að Viðreisn í borginni væri einnig í nokkurs konar tilvistarkreppu, rétt eins og VG og Sósíalistar, þar sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti hyggst ekki gefa kost á sér og Pavel Bartoszek sé einnig farinn á þing. Páll velti fyrir sér hvort framboð Aðalsteins Leifssonar sé viðbragð forystu Viðreisnar við framboði Róberts Ragnarssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Grindavíkur. „Kannski var forystan ekkert sérstaklega ánægð með þetta fyrsta útspil,“ sagði Páll en tók þó fram að þessar vangaveltur byggðu ekki á miklu. Telja að Guðlaugur taki slaginn Páll, sem var lengi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði flokkinn hafa verið í tilvistarkreppu í Reykjavík í áratugi. Hann telur þó að fylgisaukning undanfarið sé líklega meira vegna óvinsælda meirihlutans en eigin verðleika. Bæði Páll og Vigdís telja líklegt að Guðlaugur Þór Þórðarson fari í slaginn um oddvitasætið. „Ég veðja á það núna, svona rétt fyrir jól, án þess að ég viti neitt,“ sagði Vigdís og benti á að Hildur Björnsdóttir hefði einnig gefið kost á sér og að baráttan gæti orðið spennandi. „Já, ég veit ekkert heldur,“ bætti Páll við. „En ef ég ætti að segja hvað mér finnst akkúrat núna, þá finnst mér það líklegra heldur en hitt.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Fleiri fréttir Ísraelum gangi illa ef ætlunin hafi verið að fremja þjóðarmorð Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Sjá meira