Nokkur fjölbýlishús í ljósum logum Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2025 10:52 Íbúar fylgjast með eldhafinu í Hong Kong. AP/Chan Long Hei Nokkur fjölbýlishús standa í ljósum logum í Hong Kong. Að minnsta kosti þrettán eru látnir og fimmtán særðir vegna eldhafsins. Hvernig eldurinn kviknaði er ekki ljóst en hann mun hafa dreifst hratt milli húsa með stillönsum úr bamus og netum sem búið var að reisa við húsin.
Uppfært 12:50 Tólf íbúar og einn slökkviliðsmaður hafa látið lífið í eldhafinu, samkvæmt miðlinum South China Morning Post. 767 slökkviliðsmenn á 128 slökkvibílum og 57 sjúkrabílum, auk fjögur hundruð lögregluþjóna, taka þátt í aðgerðum á vettvangi. SCMP hefur eftir lögreglu að nokkrar tilkynningar hafi borist um fólk sem sé fast í húsunum. Ekki er vitað hve margir urðu innlyksa í húsunum en talið er að þeir séu að minnsta kosti þrettán. Eldurinn dreifðist hratt milli húsa vegna stillasa sem stóðu við þau.AP/Chan Long Hei Í heildina standa átta fjölbýlishús þarna á svæðinu. Í þeim húsum eru nærri því tvö þúsund íbúðir og þarna bjuggu nærri því fimm þúsund manns, árið 2021, samkvæmt frétt BBC. SCMP hefur eftir embættismönnum að eldurinn hafi nú dreifst í öll húsin en umfang eldhafsins í húsunum liggur ekki vel fyrir að svo stöddu. Embættismenn segja óljóst hvort yfir höfuð sé hægt að ná tökum á eldunum. Hér að neðan má sjá beina útsendingu Reuters frá Hong Kong. Hringdu eftir hjálp Lögreglan sagði fyrr í morgun, að þremur klukkustundum eftir að eldarnir kviknuðu hefðu enn verið að berast símtaöl frá fólki sem sat fast inn í húsunum. Einn þeirra var fastur á þaki eins hússins. SCMP hefur eftir embættismanni í Hong Kong að talið sé að að minnsta kosti þrettán séu fastir inni í húsunum. Eldurinn var fyrst settur í fyrsta flokk en fljótt færður upp í þann fjórða. Síðar var hann svo settur í fimmta flokk, sem er hæsti flokkur elda í Hong Kong. Flokkarnir fara eftir því hversu alvarlegir eldarnir eru. Þetta er fyrsti fimmta flokks eldurinn í Hong Kong í sautján ár. Mikið viðbragð er á vettvangi en yfirvöld segjast hafa stjórn á eldinum í einu af fjölbýlishúsunum.AP/Chan Long Hei Stillansar úr bambus eru algengir þar sem framkvæmdir eiga sér stað í Hong Kong. Yfirvöld þar tilkynntu fyrr á þessu ári að til stæði að reyna að fækka þeim á opinberum vinnustöðum, til að auka öryggi. 83 ára maður sem bjó í einu húsinu sagði við blaðamenn að brunabjöllur hefðu ekki farið í gang þegar eldarnir kviknuðu. Þess vegna hafi fólk verið lengi að átta sig á hættunni. Aðrir íbúar hafa slegið á svipaða strengi. Embættismaður sem talað var við hafði eftir íbúum sem flúðu að þeir hefðu áttað sig á stöðunni þegar þeir fundu brunalykt og þegar öryggisvörður barði á dyrnar hjá þeim. Þá var eldurinn orðinn töluvert útbreiddur og þau hafi haft lítinn tíma til að flýja. Fréttin hefur verið og verður uppfærð. Frá Hong Kong í morgun. Fjölbýlishúsin sem loga eru mjög stór.AP/Chan Long Hei
Hong Kong Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira