Bjóða til sögulegrar tölvuleikjaveislu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. nóvember 2025 15:54 Reikna má með að fjölmargir nýti tækifærið að spila alls konar tölvuleiki á morgun í Arena Gaming í Turninum á Smáratorgi. Íslenskum tölvuleikjaiðnaði verður gert hátt undir höfði um helgina en á laugardag safnast íslensk tölvuleikjafyrirtæki saman og bjóða áhugasömum Íslendingum að kynna sér leiki, bæði þá sem hafa þegar verið gefnir út og þá sem eru í vinnslu. Samhliða þessu verður íslenskum tölvuleikjum gert hátt undir höfði á Steam sem er stærsti leikjavettvangur í heimi og lykilaðili í dreifingu og sölu tölvuleikja. „
Milljónir tölvuleikjaspilara um allan heim nota Steam, það er stærsta tölvuleikjaplatformið á PC í heiminum. Um helgina verður sett upp á Steam sérstök „Made in Iceland“ síða þar sem íslenskir leikir verða í forgrunni,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins. Hún sér um starfsgreinahóp íslenskra leikjaframleiðenda hjá samtökunum sem sameinast þar undir hatti Samtaka leikjaframleiðenda eða Icelandic Gaming Industry – IGI. Leikjahönnuðurnir mæta til leiks „Ég hef unnið með íslenskum leikjafyrirtækjum á síðustu árum og það hefur sjaldan verið jafnmikil gróska í iðnaðinum. Undanfarin ár hefur verið samfelldur vöxtur bæði í útgáfu leikja, útflutningstekjum, veltu og starfsmannafjölda hjá iðnaðinum og við hjá SI og IGI vildum kynna íslenskt samfélag fyrir því hversu frábærir hlutir eru að eiga sér stað hjá þessari atvinnugrein.“ Nanna segir að því hafi verið ákveðið að blása til sérstaks viðburðar, Icelandic Gaming Fest, og bjóða áhugasömum að prófa íslenska leiki og hitta leikjahönnuðina sjálfa. Viðburðurinn verður haldinn í Arena Gaming og er í samstarfi við Íslandsstofu. Icelandic Gaming Fest er stærsti dagur íslensks tölvuleikjaiðnaðar fram að þessu, aldrei áður hafa íslensk leikjafyrirtæki sameinast með þessum hætti að sögn Nönnu Milljarða króna velta „Við viljum sýna almenningi, fjárfestum og samstarfsaðilum að íslensk leikjagerð er lifandi, metnaðarfull og full af hæfileikum. Þetta er mikilvægt augnablik fyrir íslenska leikjagerð og leggur grunn að frekari markaðssókn erlendis og vexti á komandi árum.“ Á viðburðinum verður hægt að prófa yfir tuttugu íslenska leiki. „Það eru eflaust ekki allir hér á landi sem gera sér grein fyrir því hversu stór þessi iðnaður er orðinn og hversu mikil tækifæri búa þar fyrir íslenskt hagkerfi.“ Velta iðnaðarins nam 80 milljónum dollara árið 2023 sem eru ríflega 10 milljarðar íslenskra króna á gengi dagsins í dag en Nanna segir að unnið sé að uppfærðum hagtölum greinarinnar. „Í dag eru starfandi um 20 leikjafyrirtæki á Íslandi en tæplega 500 starfsmenn eru í iðnaðinum. Þetta eru ótrúlegar tölur fyrir lítið hagkerfi og við hvetjum alla til þess að koma, kynna sér málið og fagna þessum árangri með okkur.“ Leikjahátíðin verður á laugardaginn, 22. nóvember, á milli 12 og 16 í Arena Gaming, Turninum, Smáratorgi.
Leikjavísir Tækni Mest lesið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Lífið Festist í lyftu í New York Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Hamilton ætlar ekki að bruna Lífið Tímabilið sem flestir vilja gleyma Lífið Alma stolt af syninum Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Fleiri fréttir Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Sjá meira