FH-stelpurnar sáu um mörkin í sannfærandi sigri Íslands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2025 13:07 Byrjunarlið Íslands í leiknum á móti Slóveníu í dag. Knattspyrnusamband Íslands Íslenska sautján ára landslið kvenna í fótbolta er komið áfram í næstu umferð í undankeppni Evrópumótsins eftir flottan sigur á heimastúlkum í Slóveníu í dag.
Íslenska liðið vann leikinn 3-0 en þetta var hreinn úrslitaleikur um sæti í A-deildinni í næstu umferð undankeppninnar. Öll mörk íslenska liðsins komu í seinni hálfleiknum en Slóvenar misstu Lönu Lesjak af velli með rautt spjald á 31. mínútu. Íslensku stelpurnar höfðu unnið 6-2 sigur á Færeyjum á laugardaginn en Slóvenía vann færeyska landsliðið 3-0. FH-ingurinn Anna Heiða Óskarsdóttir kom Íslandi í 1-0 á 72. mínútu eftir undirbúning Hafrúnar Birnu Helgadóttur sem er einnig í FH. Anna Heiða skoraði markið með frábæru langskoti langt fyrir utan teig. Hafrún Birna skoraði sjálf annað markið fjórum mínútum síðar með öðru frábæru langskoti og þriðji FH-ingurinn, Ingibjörg Magnúsdóttir, skoraði síðan þriðja markið á 89. mínútu. Enn á ný sýndu íslensku stelpurnar góða skottækni sína. Ingibjörg fékk boltann frá Eriku Ýr Björnsdóttur og skoraði flottu skoti upp í bláhornið. Ingibjörg skoraði í báðum leikjunum en á móti Færeyjum skoruðu einnig þær Anika Jóna Jónsdóttir (Víkingi R.) (2 mörk), Elísa Birta Káradóttir (HK) og Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA) auk þess sem eitt markið var sjálfsmark. Dregið verður í seinni umferð undankeppninnar 11. desember næstkomandi.
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira