„Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Sindri Sverrisson skrifar 10. nóvember 2025 13:48 Það hefði mögulega getað haft mikil áhrif á leik Manchester City og Liverpool í gær ef mark Virgils van Dijk hefði fengið að standa. Getty/Michael Regan Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni skoðuðu fyrri dæmi á leiktíðinni um mörk sem fengið hafa að standa en voru keimlík markinu sem dæmt var af Liverpool í stórleiknum við Manchester City í gær. Sitt sýndist hverjum um hvort dómurinn hefði verið réttur eða kolrangur.
Myndband af markinu sem dæmt var af Virgil van Dijk, sem og markinu sem Manchester United skoraði gegn Nottingham Forest og Sunderland gegn Chelsea, voru sýnd í Messunni í gær. Umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Sunnudagsmessan - Mark dæmt af Liverpool „Aðalmunurinn þarna er að hvorugur markmannanna er að biðja um eitthvað. Ég held að það spili rosalega mikinn þátt í þessu. Sjáið hvað Donnarumma er rosalega snöggur að kveikja á þessu og kvarta yfir þessu,“ sagði Albert Brynjar Ingason um mark Van Dijk. „En þetta er algjört bull, þessi niðurstaða að taka markið af. Hann hefur engin áhrif. Donnarumma er búinn að taka skrefið í hina áttina og er aldrei að fara að verja þetta, hvort sem Robertson er þarna eða ekki. Mér finnst þetta pirrandi bullákvörðun,“ sagði Albert. Bjarni Guðjónsson var ekki á sama máli. „Það sem vantar þarna er línan. Að línan sé skýr fyrir okkur sem erum að horfa á leikinn. Má boltinn fara yfir hausinn á honum eða má hoppa yfir boltann? Ég held að þetta sé rétt ákvörðun. Þegar þú þarft að beygja þig og boltinn fer yfir þig, þá hefur þú áhrif á það sem er að gerast. Það breytir því þá ekki hversu rangar hinar ákvarðanirnar eru. En ef þetta var ekki rétt ákvörðun þá gæti þetta hafa verið stórt móment. Ég held að þetta hafi verið rétt,“ sagði Bjarni.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira