Leita konu sem ók á konu og stakk af Árni Sæberg skrifar 29. október 2025 11:58 Áreksturinn varð á Hverfisgötu til móts við Þjóðleikhúsið. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns, sem vitni segja vera konu, sem ók á konu á rafmagnshlaupahjóli á hjólastíg við Hverfisgötu í Reykjavík, á móts við Þjóðleikhúsið, þriðjudagsmorguninn 7. október síðastliðinn rétt fyrir klukkan níu.
Í tilkynningu þess efnis segir að áreksturinn hafi nánar tiltekið orðið á milli klukkan 08:40 og 08:50. Um ljósgráa bifreið sé að ræða, en í aðdraganda slyssins hafi henni verið beygt af Hverfisgötu og áleiðis að plani austan við Þjóðleikhúsið svo árekstur varð. Við hann hafi konan fallið af rafmagnshlaupahjólinu, en farþegar úr aðvífandi strætisvagni hafi hlúð að henni á vettvangi. Viðbragðsaðilum hafi ekki verið tilkynnt um slysið en konan hafi síðar farið á slysadeild og þá hafi áverkar á henni komið í ljós. „Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.“ Lögreglan biðji umræddan ökumann, sem vitni hafi sagt hafa verið konu, um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu séu hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið megi sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 9314@lrh.is
Lögreglumál Samgönguslys Umferðaröryggi Reykjavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira