Gera aðra atlögu að titlinum eftir handleggsbrot Elínar Helenu Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2025 13:30 Það styttist væntanlega í að Agla María Albertsdóttir taki aftur við skildinum sem fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks. vísir/Diego Breiðablik getur orðið Íslandsmeistari annað árið í röð í kvöld þegar liðið sækir Þrótt heim í Laugardal, í uppgjöri þjálfara sem nú er ljóst að munu báðir hætta með sitt lið eftir tímabilið.
Þetta verður önnur tilraun Breiðabliks til að tryggja sér endanlega Íslandsmeistaratitilinn 2025 en liðið tapaði óvænt á heimavelli gegn Stjörnunni í síðasta leik, 2-1. Meiðsli Elínar Helenu Karlsdóttur, sem handleggsbrotnaði gegn Stjörnunni, ollu reiði í herbúðum Blika og ljóst er að hún spilar ekki meira á tímabilinu. Nik Chamberlain, þjálfari Blika, sagði þetta „mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu“ og að þau hefðu slegið hans leikmenn út af laginu gegn Stjörnunni. Fjórar umferðir eru eftir af deildinni og er Breiðablik með tíu stiga forskot á Þrótt og FH. Jafntefli gæti því dugað liðinu til að landa titlinum í kvöld, ef FH vinnur ekki Stjörnuna á sama tíma, og sigur myndi alltaf tryggja Breiðabliki titilinn. Þróttur er á sama tíma í hnífjafnri og harðri baráttu við FH um 2. sæti deildarinnar, Evrópusæti, en liðin mætast einmitt í Kaplakrika á sunnudaginn. Stórleikurinn í Laugardal í kvöld er fyrsti leikurinn eftir að greint var frá því að Nik færi frá Breiðabliki til að taka við Kristianstad í Svíþjóð eftir tímabilið, og að Ólafur Kristjánsson þjálfari Þróttar myndi hætta með liðið til að taka við sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Leikir í dag og á morgun: Þriðjudagur: 18.00 Þróttur - Breiðablik 18.00 Víkingur - Valur Miðvikudagur: 18.00 Stjarnan - FH Bestu mörkin verða svo í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2 annað kvöld klukkan 22.
Besta deild kvenna Breiðablik Þróttur Reykjavík FH Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Körfubolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira