Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Atli Ísleifsson skrifar 29. september 2025 14:33 Myndin sýnir aksturátt bílsins að slysstað. Á myndinni eru hjólför á þessum einnar akreinar malarvegi fyrir umferð í báðar áttir og engin umferðarmerki sjáanleg. Slysið varð 24. september 2024. RNSA Meginorsök banaslyss sem varð á Skagavegi í september á síðasta ári var að ökumaður missti stjórn á bílnum í beygju á malarvegi, ók á vegrið einbreiðrar brúar, og hafnaði á hvolfi út í á. Ökumaðurinn, sem 34 ára karlmaður frá Hong Kong, lést í slysinu en farþeginn slasaðist lítið. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið sem birt var í dag. Slysið varð þann 24. september 2024. Bíllinn var af gerðinni Toyota RAV4 og var honum ekið norður Skagaveg og varð slysið um sautján kílómetra norður af gatnamótum við Skagaströnd. Í skýrslunni ítrekar nefndin meðal annars að þó að hámarkshraði á malarvegum sé 80 þá eigi ávallt að miða hraða við aðstæður og reynslu af akstri á malarvegi. Mikilvægt sé að hægja á hraðanum þegar farið er af bundnu slitlagi og yfir á malarveg. Slysið varð á Skagavegi við Fossá.RNSA Stöðvaðist á hvolfi Um slysið segir að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í vinstri beygju en handan beygjunnar tók við einbreið brú. Skriðför, sem hafi verið í hægri vegarkanti eftir bílinn, hófust 41 metra frá brúnni. Vinstri framhluta bílsins var ekið á eystra vegrið brúarinnar og hélt bílinn áfram út í ána þar sem hún stöðvaðist á hvolfi. Frá brúargólfi hafi verið 2,7 metrar beint niður að aftanverðum undirfleti bílsins en hún maraði í hálfu kafi. Fram kemur að ökumaðurinn hafi ekki náð að komast út úr bílnum og lést hann í slysinu. Hann er talinn hafa látust af völdum drukknunar. Farþeginn komst hins vegar út úr bílnum og upp á árbakkann. Tilkynnt var um slysið klukkan 14:11 eftir hádegi og voru viðbragðsaðilar þá sendir á vettvang. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Hámarkshraði of hár og merkingum ábótavant Það var mat nefndarinnar að meginorsök slyssins hafi verið að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í vinstri beygju á malarvegi, ók á vegrið einbreiðrar brúar, og hafnaði á hvolfi út í á. Aðrar orsakir slyssins eru sagðar vera að vegmerkingum og vegbúnaði við einbreiða brú hafi verið ábótavant. Þannig voru engin umferðarmerki á veginum við slysstað til leiðbeiningar og/eða viðvörunar um beygjur, breidd vegar eða einbreiða brú framundan. Sömuleiðis segir að leyfður hámarkshraði hafi verið of hár við einbreiða brú. Leyfður hámarkshraði á veginum, 80 km/klst, við slysstað hafi verið var hærri en hönnunarhraði vegarins sem sé 40 til 70 km/klst. Samsett mynd sem sýnir ákomu á brúarhandrið og ummerki á steinkanti á leið bifreiðarinnar út í ána.RNSA Þarf að hugsa að innviðum og ástandi vega Nefndin fjallar einnig um að Kálfshamarsvík á Skaga, sem tilheyri svokallaðri Norðurstrandarleið, hafi verið markaðssett sem áhugaverður áfangastaður fyrir ferðamenn. Sá áfangastaður sé 6,5 kílómetra norðan við slysstað og var það – að sögn farþegans – næsti áfangastaður ferðamannanna. Rannsóknarnefndin segir að við markaðssetningu ferðamannaleiða þurfi að huga að innviðum, eins og ástandi vega, að þeim stöðum sem markaðssetningin beinist að. Koma þurfi upplýsingum til þeirra sem ferðast á eigin vegum um hættur á leið til áfangastaða, sérstaklega þeirra sem fáfarnir eru og þar sem leiðir eru erfiðar yfirferðar. Akstursátt og slysstaður á yfirlitsmynd.RNsa Tillögur í öryggisátt Varðandi tillögur í öryggisátt þá beinir rannsóknarnefnd samgönguslysa þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að gera öryggisúttekt á umferðarmerkjum á stofn- og tengivegum í nánd við einbreiðar brýr. Athugað verði meðal annars leyfður hámarkshraði og/eða merkingar um leiðbeinandi hraða yfir einbreiðar brýr. Ennfremur er þeirri tillögu beint til Vegagerðarinnar að vinna úttekt á því hvort öryggiskröfur brúarhandriða brúa, sem tilheyra stofn- eða tengivegum, séu fullnægjandi. Samgönguslys Húnabyggð Umferðaröryggi Tengdar fréttir Lögregluþjónn frá Hong Kong lést við Fossá á Skaga Maðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögregluþjónn frá Hong Kong. Eiginkona hans, sem slasaðist, er einnig lögregluþjónn. 25. september 2024 10:26 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið sem birt var í dag. Slysið varð þann 24. september 2024. Bíllinn var af gerðinni Toyota RAV4 og var honum ekið norður Skagaveg og varð slysið um sautján kílómetra norður af gatnamótum við Skagaströnd. Í skýrslunni ítrekar nefndin meðal annars að þó að hámarkshraði á malarvegum sé 80 þá eigi ávallt að miða hraða við aðstæður og reynslu af akstri á malarvegi. Mikilvægt sé að hægja á hraðanum þegar farið er af bundnu slitlagi og yfir á malarveg. Slysið varð á Skagavegi við Fossá.RNSA Stöðvaðist á hvolfi Um slysið segir að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í vinstri beygju en handan beygjunnar tók við einbreið brú. Skriðför, sem hafi verið í hægri vegarkanti eftir bílinn, hófust 41 metra frá brúnni. Vinstri framhluta bílsins var ekið á eystra vegrið brúarinnar og hélt bílinn áfram út í ána þar sem hún stöðvaðist á hvolfi. Frá brúargólfi hafi verið 2,7 metrar beint niður að aftanverðum undirfleti bílsins en hún maraði í hálfu kafi. Fram kemur að ökumaðurinn hafi ekki náð að komast út úr bílnum og lést hann í slysinu. Hann er talinn hafa látust af völdum drukknunar. Farþeginn komst hins vegar út úr bílnum og upp á árbakkann. Tilkynnt var um slysið klukkan 14:11 eftir hádegi og voru viðbragðsaðilar þá sendir á vettvang. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Hámarkshraði of hár og merkingum ábótavant Það var mat nefndarinnar að meginorsök slyssins hafi verið að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í vinstri beygju á malarvegi, ók á vegrið einbreiðrar brúar, og hafnaði á hvolfi út í á. Aðrar orsakir slyssins eru sagðar vera að vegmerkingum og vegbúnaði við einbreiða brú hafi verið ábótavant. Þannig voru engin umferðarmerki á veginum við slysstað til leiðbeiningar og/eða viðvörunar um beygjur, breidd vegar eða einbreiða brú framundan. Sömuleiðis segir að leyfður hámarkshraði hafi verið of hár við einbreiða brú. Leyfður hámarkshraði á veginum, 80 km/klst, við slysstað hafi verið var hærri en hönnunarhraði vegarins sem sé 40 til 70 km/klst. Samsett mynd sem sýnir ákomu á brúarhandrið og ummerki á steinkanti á leið bifreiðarinnar út í ána.RNSA Þarf að hugsa að innviðum og ástandi vega Nefndin fjallar einnig um að Kálfshamarsvík á Skaga, sem tilheyri svokallaðri Norðurstrandarleið, hafi verið markaðssett sem áhugaverður áfangastaður fyrir ferðamenn. Sá áfangastaður sé 6,5 kílómetra norðan við slysstað og var það – að sögn farþegans – næsti áfangastaður ferðamannanna. Rannsóknarnefndin segir að við markaðssetningu ferðamannaleiða þurfi að huga að innviðum, eins og ástandi vega, að þeim stöðum sem markaðssetningin beinist að. Koma þurfi upplýsingum til þeirra sem ferðast á eigin vegum um hættur á leið til áfangastaða, sérstaklega þeirra sem fáfarnir eru og þar sem leiðir eru erfiðar yfirferðar. Akstursátt og slysstaður á yfirlitsmynd.RNsa Tillögur í öryggisátt Varðandi tillögur í öryggisátt þá beinir rannsóknarnefnd samgönguslysa þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að gera öryggisúttekt á umferðarmerkjum á stofn- og tengivegum í nánd við einbreiðar brýr. Athugað verði meðal annars leyfður hámarkshraði og/eða merkingar um leiðbeinandi hraða yfir einbreiðar brýr. Ennfremur er þeirri tillögu beint til Vegagerðarinnar að vinna úttekt á því hvort öryggiskröfur brúarhandriða brúa, sem tilheyra stofn- eða tengivegum, séu fullnægjandi.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Samgönguslys Húnabyggð Umferðaröryggi Tengdar fréttir Lögregluþjónn frá Hong Kong lést við Fossá á Skaga Maðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögregluþjónn frá Hong Kong. Eiginkona hans, sem slasaðist, er einnig lögregluþjónn. 25. september 2024 10:26 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
Lögregluþjónn frá Hong Kong lést við Fossá á Skaga Maðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögregluþjónn frá Hong Kong. Eiginkona hans, sem slasaðist, er einnig lögregluþjónn. 25. september 2024 10:26