Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Samúel Karl Ólason skrifar 28. september 2025 11:04 Frá því þegar Trump og Xi hittust árið 2019. AP/Susan Walsh Xi Jinping, forseti Kína, er sagður reyna að nota ákafa Donalds Trump, kollega síns í Bandaríkjunum, til að gera viðskiptasamning ríkjanna á milli til að ná fram sínu helsta baráttumáli. Xi vonast til þess að fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn og standa gegn sjálfstæði eyríkisins.
Með þessu vonast Xi, samkvæmt heimildum Wall Street Journal, til að einangra Taívan alfarið á alþjóðasviðinu. Frá því hann tók við völdum árið 2012 hefur Xi heitið því opinberlega að ná tökum á Taívan, jafnvel þó hann þurfi að beita hervaldi til þess. Þetta hefur hann lagt sérstaka áherslu á á þriðja kjörtímabili sínu. Embættismenn í Bandaríkjunum hafa sagst hafa heimildir fyrir því að Xi hafi skipað yfirmönnum hers síns að vera tilbúnir til að ráðast á Taívan fyrir árið 2027. Trump sagði í sumar að Xi hefði lofað honum að ráðast ekki á Taívan á meðan hann væri forseti. Hann sagði ekki hvenær þetta loforð hefði verið veitt en sagði að Xi hefði sagst vera þolinmóður og það ætti við alla Kínverja. Bandaríkin slitu formlegum tengslum við Taívan árið 1979, að kröfu Kínverja, en hafa þrátt fyrir það haldið umfangsmiklum óformlegum tengslum við ríkið og útvega Taívan meðal annars vopn. Bandaríkjamenn hafa um árabil haldið því loðnu hvort þeir myndu beita valdi til að verja Taívan. Joe Biden, forveri Trumps, lýsti því þó yfir árið 2022 að Bandaríkjamenn myndu aðstoða Taívan hernaðarlega en ummælin áttu ekki að marka stefnubreytingu. Ríkisstjórn Trumps hefur ekki fylgt þessari orðræðu Bidens og hefur ríkisstjórnin þess í stað sagst standa gegn einhliða breytingum á núverandi ástandi milli Kína og Taívan. Telur sig geta talað Trump til Samkvæmt heimildum WSJ er Xi nokkuð viss um að hann geti fengið Trump til að breyta afstöðu sinni gagnvart Taívan. Ráðgjafar ríkisstjórnar Xi, sem standa þó utan ríkisstjórnarinnar, hafa sagt opinberlega að til að ná viðskiptasamningi þurfi Bandaríkjamenn að lýsa yfir andstöðu við sjálfstæði Taívan. Evan Medeiros, fyrrverandi meðlimur í þjóðaröryggisráði Hvíta húss Baracks Obama og núverandi prófessor við Georgetown, segir það að reka fleyg milli Taívan og Bandaríkjanna vera hinn heilaga kaleik ráðamanna í Peking. Það myndi grafa undan sjálfsöryggi Taívana og auka verulega á áhrif Kínverja yfir eyríkinu. Bandaríkjamenn og Kínverjar gerðu nýverið samning um samfélagsmiðilinn TikTok en þær viðræður hafa opnað á leiðtogafund milli Xi og Trumps. Þeir ætla þegar að hittast á hliðarlínum ráðstefnu í Suður-Kóreu. Þá hafa borist fregnir af mögulegri heimsókn Trumps til Peking snemma á næsta ári og að Xi heimsæki Washington DC svo seinna á árinu. Viðskiptastríð og viðræður Nýverið bárust fregnir af því að Trump hefði neitað að samþykkja umfangsmikla hergagnasendingu til Taívan og hefur það verið sett í samhengi við viðræður Bandaríkjamanna og Kínverja um viðskiptasamband ríkjanna. Sjá einnig: Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Bandaríkin og Kína hafa átt í nokkuð umfangsmiklum viðskiptaerjum og hefur þeim verið lýst sem viðskiptastríði. Trump hefur að mestu leyti notast við tolla og bannað bandarískum fyrirtækjum að selja tilteknar vörur í Kína. Ráðamenn í Kína hafa einnig beitt einhverju skæðast vopni þeirra, sem er að takmarka sölu á sjaldgæfum málmum og afurðum úr þeim til Bandaríkjanna og annarra ríkja. Fyrr á þessu ári vöruðu forsvarsmenn stórra fyrirtækja víða um heim við umfangsmiklum og slæmum áhrifum á hagkerfi heimsins vegna þessara takmarkana en Kínverjar eru svo gott sem allsráðandi á sviði sjaldgæfra málma. Sjá einnig: Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Kínverjar hafa einnig hætt að kaupa landbúnaðarvörur frá Bandaríkjunum, sem hefur komið verulega niður á bandarískum bændum.
Kína Bandaríkin Donald Trump Taívan Tengdar fréttir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta Taívan og þrír aðrir sem störfuðu fyrir stjórnarflokk landsins hafa verið dæmdir fyrir njósnir. Mennirnir eru sagðir hafa njósnað fyrir Kína og voru þeir dæmdir í fjögurra til tíu ára fangelsi. 26. september 2025 16:12 Enn ein ásiglingin við rifið umdeilda Talsmenn strandgæslu Kína hefur sakað áhöfn skips frá Filippseyjum að sigla vísvitandi á skip strandgæslunnar við umdeilt rif í Suður-Kínahafi. Ráðamenn í Filippseyjum segja ásakanirnar rangar. Kínverskir sjóliðar hafi notað öflugar vatnsbyssur til að skemma filippseyskt skip og slasa áhafnarmeðlim þar um borð. 16. september 2025 15:06 Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Báðum flugmóðurskipum Kína hefur verið siglt um Kyrrahafið undanfarna daga og er það í fyrsta sinn sem skipin eru notuð þar saman. Ráðamenn í Japan hafa áhyggjur af auknum hernaðarumsvifum Kínverja á Kyrrahafinu og víðar. Svipaða sögu er að segja frá Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. 12. júní 2025 10:32 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta Taívan og þrír aðrir sem störfuðu fyrir stjórnarflokk landsins hafa verið dæmdir fyrir njósnir. Mennirnir eru sagðir hafa njósnað fyrir Kína og voru þeir dæmdir í fjögurra til tíu ára fangelsi. 26. september 2025 16:12
Enn ein ásiglingin við rifið umdeilda Talsmenn strandgæslu Kína hefur sakað áhöfn skips frá Filippseyjum að sigla vísvitandi á skip strandgæslunnar við umdeilt rif í Suður-Kínahafi. Ráðamenn í Filippseyjum segja ásakanirnar rangar. Kínverskir sjóliðar hafi notað öflugar vatnsbyssur til að skemma filippseyskt skip og slasa áhafnarmeðlim þar um borð. 16. september 2025 15:06
Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Báðum flugmóðurskipum Kína hefur verið siglt um Kyrrahafið undanfarna daga og er það í fyrsta sinn sem skipin eru notuð þar saman. Ráðamenn í Japan hafa áhyggjur af auknum hernaðarumsvifum Kínverja á Kyrrahafinu og víðar. Svipaða sögu er að segja frá Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. 12. júní 2025 10:32